Gefa ekki upp bónusa til landsliðsmanna vegna HM fyrr en 2018 Sigurður Mikael Jónsson skrifar 17. október 2017 06:00 Guðni Bergsson, formaður KSÍ. vísir/anton
KSÍ mun ekki upplýsa fyrr en í ársuppgjöri sínu hvað leikmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu fá í bónusgreiðslur fyrir að komast á lokamót HM í knattspyrnu á næsta ári. Ísland tryggði sér sæti á HM í Rússlandi og fylgdi þar eftir glæsilegum árangri sem skilaði liðinu á EM í Frakklandi. Upplýst var um það í sérstöku rekstraryfirliti á ársþingi KSÍ í febrúar síðastliðnum að greiðslur til leikmanna og þjálfara vegna EM námu 846 milljónum. KSÍ fékk þá alls rúma 1,9 milljarða króna frá UEFA í þátttöku- og árangurstengdar greiðslur og rann því nærri helmingurinn af því í vasa leikmanna og þjálfara í formi bónusgreiðslna sem samið hafði verið sérstaklega um.Vísir fjallaði í ársbyrjun ítarlega um bónusana og viðræður leikmanna við KSÍ þeim tengdar. Kom þar fram að viðræðurnar hefðu dregist á langinn og að skipting greiðslna hefði valdið ósætti. Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ liggur líka fyrir samkomulag um bónusgreiðslur fyrir HM. FIFA hefur gefið út að styrkir til knattspyrnusambanda þátttökuþjóða verði hækkaðir frá HM 2014 í Brasilíu en hversu mikið liggur ekki fyrir. Styrkirnir hafa skipst í undirbúningsgreiðslu, greiðslu fyrir þátttöku í riðlakeppni og svo árangur í útsláttarhluta keppninnar. Áætlað hefur verið að samböndin fái nú um tvær milljónir dala í undirbúningsgreiðslu og tíu milljónir fyrir að komast í riðlakeppni lokamótsins. Alls um 1,2 milljarða króna. Hversu stór skerfur af þeirri upphæð fer til leikmanna KSÍ er ekki gefið upp. „Við birtum þessar árangurstengdu greiðslur í ársuppgjöri. Við gerðum það síðast og sá verður hátturinn á aftur og ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um annað,“ segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ. Umræða um bónusa bíði betri tíma. Undir það tekur Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ. „Við erum með samning í gangi og erum að fara yfir þessi mál og ná utan um þetta. Þessi staða er nýkomin upp og ekki verið fjallað um málið í stjórn.“ Ef sami háttur verður hafður á og síðast mun að óbreyttu ekki skýrast hversu ríkulega landsliðshetjurnar fá launað fyrir afrekið að komast á HM fyrr en í ársbyrjun 2019.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Nefndin sem Lars gagnrýndi: Í bjórbanni í Annecy og formaðurinn reifst við Sigga Dúllu Leikmenn karlalandsliðsins í knattspyrnu hrista höfuðið og skilja ekki tilgang nefndarinnar frekar en landsliðsþjálfararnir. 1. desember 2016 13:00 Bónusgreiðslur hjá KSÍ: Geir fékk á aðra milljón króna eftir EM-ævintýrið Stjórn Knattspyrnusambands Íslands greiðir starfsmönnum launauppbót vegna EM í Frakklandi í sumar. Upphæðin samsvaraði mánaðarlaunum hvers starfsmanns. 26. september 2016 07:00 Skipting bónusanna vegna EM-ævintýrisins skildi eftir sig sára og svekkta landsliðsmenn Af 1,9 milljarði króna sem KSÍ fékk vegna árangurs karlalandsliðsins fóru um 600 milljónir króna til leikmanna. Bónusgreiðslurnar eru af stærðargráðu sem aldrei áður hafa sést hér á landi en í samræmi við greiðslur annarra landsliða. 10. febrúar 2017 09:00 Bónusgreiðslur Geirs tilkomnar vegna aukaálags í tengslum við framkvæmdastjóraskipti hjá KSÍ Tveggja mánaða bónusgreiðslur sem Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fékk vegna vinnu sinnar á EM 2016 voru tilkomnar vegna aukaálags í tengslum við framkvæmdastjóraskipti hjá Knattspyrnusambandinu. Þetta kom fram í viðtali sem Hjörtur Hjartarson tók við Geir í útvarpsþættinum Akraborginni í dag. 29. nóvember 2016 17:45 Stelpurnar fá nokkur hundruð þúsund krónur í bónus fyrir EM-sætið Greiðslan frá KSÍ hækkar um fimmtíu prósent. 30. september 2016 10:00 Mest lesið Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Innlent Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Fleiri fréttir Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Sjá meira
Nefndin sem Lars gagnrýndi: Í bjórbanni í Annecy og formaðurinn reifst við Sigga Dúllu Leikmenn karlalandsliðsins í knattspyrnu hrista höfuðið og skilja ekki tilgang nefndarinnar frekar en landsliðsþjálfararnir. 1. desember 2016 13:00
Bónusgreiðslur hjá KSÍ: Geir fékk á aðra milljón króna eftir EM-ævintýrið Stjórn Knattspyrnusambands Íslands greiðir starfsmönnum launauppbót vegna EM í Frakklandi í sumar. Upphæðin samsvaraði mánaðarlaunum hvers starfsmanns. 26. september 2016 07:00
Skipting bónusanna vegna EM-ævintýrisins skildi eftir sig sára og svekkta landsliðsmenn Af 1,9 milljarði króna sem KSÍ fékk vegna árangurs karlalandsliðsins fóru um 600 milljónir króna til leikmanna. Bónusgreiðslurnar eru af stærðargráðu sem aldrei áður hafa sést hér á landi en í samræmi við greiðslur annarra landsliða. 10. febrúar 2017 09:00
Bónusgreiðslur Geirs tilkomnar vegna aukaálags í tengslum við framkvæmdastjóraskipti hjá KSÍ Tveggja mánaða bónusgreiðslur sem Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fékk vegna vinnu sinnar á EM 2016 voru tilkomnar vegna aukaálags í tengslum við framkvæmdastjóraskipti hjá Knattspyrnusambandinu. Þetta kom fram í viðtali sem Hjörtur Hjartarson tók við Geir í útvarpsþættinum Akraborginni í dag. 29. nóvember 2016 17:45
Stelpurnar fá nokkur hundruð þúsund krónur í bónus fyrir EM-sætið Greiðslan frá KSÍ hækkar um fimmtíu prósent. 30. september 2016 10:00