Körfubolti

Garnett býður eitt þúsund manns á völlinn í kvöld

Garnett er hér á bekknum hjá Minnesota að miðla að reynslu sinni.
Garnett er hér á bekknum hjá Minnesota að miðla að reynslu sinni. vísir/getty
Kevin Garnett er kominn heim til Minnesota og þar hefur hann fengið höfðinglegar móttökur.

Svo þakklátur er Garnett fyrir móttökurnar að hann er búinn að kaupa 1.000 miða fyrir stuðningsmennina. Stuðningsmennirnir geta nálgast þá á síðu Timberwolves í dag.

„Móttökurnar sem ég hef fengið eru lyginni líkastar og ekkert minna en ótrúlegar í raun og veru," sagði Garnett.

„Ég vil fá að þakka fyrir mig á þennan hátt. Ég elska ykkur öll og takk fyrir ástina í minn garð. Njótið leiksins í mínu boði," skrifaði Garnett.

Leikurinn er gegn Clippers í nótt og ljóst að aðdáun fólksins í Minnesota á Garnett minnkar ekki eftir þetta útspil.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×