Körfubolti

Garnett blés í eyra West og fiskaði óíþróttamannslega villu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Kevin Garnett
Kevin Garnett vísir/getty
Kevin Garnett kann öll trixin í bókinni. Þessi goðsagnakenndi leikmaður Brooklyn Nets í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum náði að pirra David West í leik Nets og Indiana Pacers í gær.

Kevin Garnett blés í eyra West sem brást við með því að hrinda Garnett frá sér og fékk fyrir vikið óíþróttamannslega villu en Garnett lét sem saklaus væri.

Garnett lék þarna eftir tilraun Lance Stephenson, fyrrum liðsfélaga West hjá Indiana Pacers, til að koma LeBron James úr jafnvægi í úrslitum Austurstrandarinnar á síðustu leiktíð. Stephenson blés þá í eyra LeBron sem lét það ekki hafa áhrif á sig.

Blásturinn hjá Garnett og Stephenson má sjá hér að neðan auk viðbragða West og LeBron.

Garnett blæs í eyra West: Stephenson blæs í eyra LeBron:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×