Innlent

Garðurinn lagður í rúst - kemst ekki inn til sín

Ægir Geirdal.
Ægir Geirdal. Mynd/Heiða Helgadóttir
„Það er til háborinnar skammar að ráðast á mann með þessum hætti,“ segir Ægir Geirdal, íbúi í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hann kom heim á þriðja tímanum í dag úr nokkra daga fríi og var aðkoman vægast sagt slæm. Ægir segir skemmdarvarga hafa eyðilagt garðinn hans, rótað öllu upp og fært grjót til auk þess búið er að brjóta garðhúsgögn og stela reiðhjóli. Grjót og mold veldur því að hann getur ekki ekið bílnum sínum inn í bílskúrinn. Til að bæta gráu ofan á svart kemst Ægir ekki heldur inn í íbúð sína sem er í parhúsi. „Ég kemst ekki inn því það er búið að troða einhverjum andskotanum í skrárnar að húsinu.“

Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Suðurnesjum eru lögreglumenn komnir á vettvang. Lögreglu barst ábending um skemmdarverkin um helgina. Ægir undrast að lögreglan hafi ekki haft samband og látið hann vita um skemmdirnar.

Ægir komst í fréttirnar í nóvember á síðasta ári þegar tvær konur ásökuðu hann um að hafa misnotað þær á unglingsaldri. Um er að ræða systur sem opnuðu bloggsíðu á netinu þar sem þær greindu í smáatriðum frá samskiptum sínum við Ægi. Hann hefur vísað ásökunum á bug og sagt konurnar á höttunum eftir peningum. „Það er gjörsamlega búið að eyðileggja mannorð mitt,“ segir Ægir nú.

Eftir að fjallað var um málið í fjölmiðlum varð Ægir að eigin sögn fyrir hótunum tveggja nágranna sem búa í sömu götu og hann í Vogum á Vatnsleysuströnd. Annar þeirra hafi ennfremur skotið golfkúlum að honum og hótað að drepa hann. Ægir er sannfærður að annar mannanna standi á bak við skemmdarverkin á lóð hans.  „Einn nágranni hefur hótað að drepa mig og réðst á mig í janúar. Pósturinn varð vitni að því,“ segir Ægir og bætir við að það mál komi fyrir dómstóla í haust. „Þetta eru ekki einhverjir krakkar. Þetta er fullorðið fólk.“

Ægir segir málið mjög alvarlegt. „Ég get alveg hagað mér svona en ég fer réttu leiðina og kæri,“ segir Ægir en bætir við að hann get vel varið sig. Hann eigi haglabyssu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×