Bíó og sjónvarp

Gæti nælt í hlutverk í Disney-mynd

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Chris Pine er í samningaviðræðum þessa dagana og gæti landað hlutverki í Disney-myndinni The Finest Hours. Þykir líklegast að Craig Gillespie leikstýri myndinni.

The Finest Hours er byggð á sannsögulegum atburðum þegar strandgæslan reyndi að bjarga tveimur olíuskipum sem rákust hvort á annað árið 1952.

Chris hefur verið mikið í fjölmiðlum á Íslandi að undanförnu vegna sambands hans og íslensku fyrirsætunnar Írisar Bjarkar Jóhannesdóttur en þau hafa lítið sést uppá síðkastið.


Tengdar fréttir

Nýtt andlit Armani

Chris Pine, nýi tengdasonur Íslands, landar stórum samningi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×