Sport

Svíinn spældur en gott að svindlarar séu gripnir

Sindri Sverrisson skrifar
Ouassim Oumaiz og Mohamed Katir á ferðinni á HM, rétt á undan Andreas Almgren sem ekki komst í úrslitahlaupið í 5.000 metra hlaupinu.
Ouassim Oumaiz og Mohamed Katir á ferðinni á HM, rétt á undan Andreas Almgren sem ekki komst í úrslitahlaupið í 5.000 metra hlaupinu. Getty/Christian Petersen

Sænski hlauparinn Andreas Almgren er skiljanlega enn svekktari nú en áður yfir því að hafa ekki komist í úrslit 5.000 metra hlaupsins á HM í frjálsum íþróttum í sumar. Tveir spænskir keppinautar hans hafa orðið uppvísir að brotum á lyfjareglum.

„Ánægður með að svindlararnir náist en þetta er súrsæt tilfinning, svo ekki sé meira sagt,“ segir Almgren.

Spánverjinn Mohamed Katir, sem vann silfur á HM í fyrra, var á dögunum dæmdur í tveggja ára keppnisbann fyrir að mæta ítrekað ekki í lyfjapróf.

Nú er svo annar Spánverji, Ouassim Oumaiz, á leið í langt bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi en hann greindist með vaxtahormónið GHRP-2.

Báðir voru Spánverjarnir með á HM í fyrra, þar sem Norðmaðurinn Jakob Ingebrigtsen fagnaði engu að síður sigri í 5.000 metra hlaupinu. Katir varð í 2. sæti og Oumaiz í 16. sæti.

Almgren komst hins vegar ekki í úrslit, þó að hann væri óhemju nálægt því, og ítrekar vonbrigði sín á Instagram eftir tíðindin af Oumaiz.

„Í fyrra var ég 0,02 sekúndum frá því að komast í úrslit í 5.000 metra hlaupi á HM. Hálft ár er liðið og tveir af gaurunum sem enduðu fyrir framan mig í riðlinum eru annað hvort komnir í bann fyrir að upplýsa ekki um hvar þeir voru eða fallnir á lyfjaprófi. Ánægður með að svindlararnir náist en þetta er súrsæt tilfinning, svo ekki sé meira sagt,“ skrifar Almgren á Instagram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×