Erlent

Glórulausar skýringar hjóna sem nauðguðu fimm­tán ára stúlku

Samúel Karl Ólason skrifar
Maðurinn hefur verið ákærður í fjórum liðum og þar á meðal fyrir nauðgun. Konan stendur frammi fyrir þremur sambærilegum ákæruliðum. Mögulegt er að þau verði ákærð fyrir fleiri brot á næstunni.
Maðurinn hefur verið ákærður í fjórum liðum og þar á meðal fyrir nauðgun. Konan stendur frammi fyrir þremur sambærilegum ákæruliðum. Mögulegt er að þau verði ákærð fyrir fleiri brot á næstunni. Getty

Lögregluþjónar í Utah í Bandaríkjunum handtóku á dögunum par sem sakað er um að hafa misnotað fimmtán ára dóttur konunnar í að minnsta kosti eitt og hálft ár. Maðurinn og konan eru sögð hafa viðurkennt brotinn og sagt að það væri betra að þau hefðu mök við hana en ókunnugt fólk.

Héraðsmiðillinn 2KUTV segir stúlkuna hafa hringt í lögregluna á fimmtudaginn síðasta og hún hafi sagt lögregluþjónum að hún hefði verið misnotuð frá því hún var fjórtán ára gömul.

Móðir stúlkunnar sagði lögregluþjónum að hún og eiginmaður hennar, sem er stjúpfaðir stúlkunnar og segist hafa alið hana upp frá blautu barnsbeini, hafi leitað til stúlkunnar og rætt við hana um að hafa mök við hana, samkvæmt öðrum héraðsmiðli sem kallast KSL.

Þau munu þá hafa heyrt af því að stúlkan hefði áhuga á að stunda kynlíf með ókunnugu fólki. Stjúpfaðir stúlkunnar mun hafa sagt lögregluþjónum að þau vildu kenna henni um kynlíf og að örugga væri fyrir hana að stunda kynlíf með þeim, frekar en ókunnugu fólki.

Maðurinn hefur verið ákærður í fjórum liðum og þar á meðal fyrir nauðgun. Konan stendur frammi fyrir þremur sambærilegum ákæruliðum. Mögulegt er að þau verði ákærð fyrir fleiri brot á næstunni.

Fleiri börn eru á heimili hjónanna en engar vísbendingar benda að svo stöddu til þess að þau hafi einnig verið misnotuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×