Innlent

Verk­fall VR í að­draganda páska hefði mikil á­hrif

Heimir Már Pétursson skrifar
Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um verkfall um 180 félagsmanna VR sem vinna hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli.
Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um verkfall um 180 félagsmanna VR sem vinna hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Vilhelm

Verkfall félagsmanna VR hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefst á miðnætti á föstudag eftir viku verði aðgerðirnar samþykktar í atkvæðagreiðslu sem hófst í dag. Viðræður deiluaðila hófst hjá ríkissáttasemjara í morgun.

Verslunarmenn sögðu sig frá breiðfylkingunni í viðræðum við Samtök atvinnulífsins og áttu því ekki aðild að kjarasamningum Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar sem undirritaðir voru síðast liðinn fimmtudag.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir að ræða þurfi fjölmörg mál sem taka kunni nokkurn tíma.Stöð 2/Arnar

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir að ræða þurfi fjölmörg mál í viðræðum við Samtök atvinnulífsins.

„Kjarasamningar eru í eðli sínu ólíkir á milli stéttarfélaga og starfsgreina. Þannig að þetta gæti alveg tekið smá tíma,“ segir formaðurinn.

En VR sækir líka á um breytingar á sérkjarasamningi starfsmanna hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli þar sem tekist er á um vaktafyrirkomulag. Tvennum sögum fer af því hvort Icelandair og SA hafi viljað ræða þau mál.

Hér má sjá dagatal yfir boðaðaðar verkfallsaðgerðir VR hjá Icelandair. Verfallsdagar eru merktir með rauðum lit.Grafík/Sara

Í morgun hófst atkvæðagreiðsla sem líkur á fimmtudag hjá þessum starfsmönnum um röð verkfallsaðgerða.

Frá miðnætti á föstudag í næstu viku til miðnættis sunnudaginn 24. mars. Í einn sólarhring frá miðnætti miðvikudaginn 27 mars, í þrjá sólarhrings frá 31. mars til 2. apríl,  í fjóra sólarhringa frá miðnætti föstudagsins 5. apríl fram til miðnættis 9. apríl og síðan ótímabundin vinnustöðvun frá miðnætti föstudagsins 12. apríl hafi ekki samist fyrir þann tíma.

Verkfallsaðgerðirnar næðu til um 180 starfsmanna í innritun farþega og hlaðmanna hjá Icelandair og myndu hafa mikil áhrif á áætlun Icelandair.

Ferðaáætlanir þúsunda farþega raskast þótt ekki kæmi til nema hluta verlfallsaðgerða starfsmanna VR hjá Icelandair.Vísir/Vilhelm

„Ég held að þetta gæti haft veruleg áhrif á flugsamgöngur hjá Icelandair. Þetta er framlínufólkið hjá Icelandair. Þetta er fólkið sem tekur á móti okkur uppi á flugvelli og afgreiðir okkur inn niðri í sal. Tékkar okkur inn í flugvélarnar. Sér um farangurinn og alla þá umsýslu. Þannig að þetta eru gríðarlega mikilvæg framlínustörf sem um er að ræða,“ segir formaður VR.

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri SA segir samningana við breiðfylkinguna í síðustu viku leggja meginlínurnar fyrir aðra samninga.Stöð 2/Arnar

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er bjartsýn á viðræðurnar við verslunarmenn. Stefnan hafi að stórum hluta verið mörkuð með samningunum við félög innan breiðfylkingarinnar á fimmtudag. VR hafi tekið þátt í mótun þeirra samninga áður en verslunarmenn sögðu sig frá breiðfylkingunni.

„Við erum hér komin með skynsama launastefnu. Langtíma kjarasamninga við flest stéttarfélög og landsambönd. Við trúum því að við eigum að geta samið við VR líka,“ segir Sigríður Margrét.

Hún telji hins vegar eðlilegast að VR færi með vaktamál starfsmanna á Keflavíkurflugvelli fyrir Félagsdóm. Verkfall um háannatíma í kring um páska hefði skaðleg áhrif á ferðaþjónustuna.

„Það liggur alveg fyrir. Þess vegna skiptir mjög miklu máli að við notum tímann vel næstu daga til að ekki þurfi að koma til þess,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir.


Tengdar fréttir

Atkvæðagreiðsla VR um röð verkfalla á Keflavíkurflugvelli hafin

Atkvæðagreiðsla um röð verkfalla starfsmanna VR hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli hófst í morgun. Ef að verföllum verður hefjast fyrstu aðgerðir á miðnætti á föstudag í næstu viku. Samningarnefndir VR og Samtaka atvinnulífsins komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu.

Stjórnvöld megi alls ekki hækka skatta eða taka lán fyrir kjarasamningunum

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir mikilvægt að stjórnvöld fari ekki skattahækkanir eða lántöku til þess að fjármagna aðkomu sína að kjarasamningum. Með því væru þau að vinna gegn markmiði samningana sem gerðir voru við breiðfylkinguna í síðustu viku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×