Real ekki í vand­ræðum með drengina hans Benitez

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Vinícius Júnior braut ísinn.
Vinícius Júnior braut ísinn. Juan Manuel Serrano Arce/Getty Images

Real Madríd vann Celta Vigo 4-0 í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Rafa Benítez, fyrrverandi þjálfari Liverpool og Real Madríd meðal annars, stýrir nú Celta Vigo.

Vinícius Júnior kom Real yfir um miðbik fyrri hálfleiks og leiddu heimamenn með einu marki þegar gengið var til búningsherbergja. Real gekk illa að ganga frá leiknum en annað markið kom ekki fyrr en á 79. mínútu leiksins.

Vicente Guaita, markvörður Celta Vigo, fékk boltann í sig eftir að skalli Antonio Rüdiger fór í slánna. Þaðan fór boltinn í netið og staðan orðin 2-0.

Carlos Dominguez, leikmaður Celta Vigo, varð svo einnig fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar skammt var til leiksloka. Hann stýrði þá fyrirgjöf í eigið net og staðan orðin 3-0 Real í vil. Hinn 19 ára gamli Arda Güler bætti svo fjórða markinu við í uppbótartíma.

Real er nú með sjö stiga forystu á toppi La Liga. Girona er í 2. sæti með 62 stig og Barcelona er sæti neðar með stigi minna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira