Körfubolti

Haukar með mikil­vægan endur­komu­sigur á Stjörnunni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tinna Guðrún var frábær í liði Hauka í kvöld.
Tinna Guðrún var frábær í liði Hauka í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Haukar unnu í kvöld fimm stiga sigur á Stjörnunni þegar liðin mættust í 5. umferð A-deildar Subway-deildar kvenna í körfubolta. Lokatölur í Ólafssal 69-65 Haukum í vil.

Gestirnir úr Garðabæ voru sterkari framan af og leiddu með fimm stigum að loknum fyrsta leikhluta. Heimaliðinu tókst að minnka muninn niður í þrjú stig fyrir hálfleik og tók svo öll völd á vellinum í þriðja leikhluta.

Sóknarleikur Stjörnunnar var hvorki fugl né fiskur framan af síðari hálfleik en liðið skoraði aðeins tíu stig í þriðja leikhluta. Var það þar sem Haukar lögðu grunninn að sigri kvöldsins, lokatölur 69-65.

Tinna Guðrún Alexandersdóttir bar af hjá Haukum en hún skoraði 18 stig og tók 6 fráköst. Þar á eftir kom Sólrún Inga Gísladóttir með 14 stig. Hjá Stjörnunni voru Kolbrún María Ármannsdóttir og Katarzyna Trzeciak með 17 stig hvor. Kolbrún María tók einnig 14 fráköst.

Haukar eru áfram í 4. sæti A-deildar, nú með 22 stig. Stjarnan er sæti neðar með 20 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×