Innlent

Nauðgaði sau­tján ára stúlku í leigu­bíl á Reykja­nes­brautinni

Árni Sæberg skrifar
Kohi braut á stúlkunni á Reykjanesbraut.
Kohi braut á stúlkunni á Reykjanesbraut. Vísir/Egill

Abdul Habib Kohi hefur verið dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar, fyrir að hafa nauðgað sautján ára stúlku í leigubíl sínum þegar hann ók henni heim.

Þetta segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp 22. febrúar síðastliðinn en birtur í dag. Þar segir að Kohi hafi verið ákærður fyrir að hafa án samþykkis og með því að beita ólögmætri nauðung, haft önnur kynferðismök en samræði við stúlkuna.

Hann hafi kysst hana nokkrum sinnum á munninn, þuklað á brjóstum hennar innan-og utanklæða, þuklað á kynfærum hennar utanklæða og nuddað kynfæri hennar innanklæða.

Tók stúlkuna upp í bílinn í miðbænum

Í skýrslu sem tekin var af stúlkunni hjá lögreglu laust fyrir klukkan 04 aðfararnótt 25. september árið 2022 er haft eftir henni að hún hafi verið niðri í bæ í Reykjavík um nóttina og hafi liðið illa, misst af vinum sínum og týnt bæði síma og veski. Það hafi verið milli klukkan 02:30 og 03:00 sem Kohi hefði komið akandi á grárri leigubifreið og talað við hana og spurt hvort það væri í lagi með hana. Hefði hún sagt honum að sér liði ekki vel, hún þyrfti að komast heim til sín og hefði hann boðist til að aka henni þangað. 

Einnig hefði hún sagt honum að hún ætti ekki peninga til að greiða honum fyrir farið en hann sagt að það væri allt í lagi, hann væri hvort sem er á leiðinni þangað.

Henni hefði orðið flökurt á leiðinni og hún kastað upp út um opinn glugga bifreiðarinnar. Hefði Kohi þá stöðvað bifreiðina á bensínstöð í Hafnarfirði áður en þau héldu áfram í átt til Reykjanesbæjar. 

Vaknaði við að maðurinn væri að káfa á kynfærum hennar

Hún hafi ítrekað sagt Kohi að henni liði ekki vel og að hún þyrfti að loka augunum og hann þá sagt við hana að fara ekki að sofa. Hún hefði þá sagt honum að hún yrði að sofna, annars myndi hún kasta upp. Síðan hefði hún lagst niður og reynt að sofna og hefði hún þá fundið fyrir því að hann hefði verið að nudda á henni bringuna og síðan farið inn á hana og káfað á brjóstum hennar. 

Hún hefði sagt við hann að hann væri miklu eldri en hún en ekki getað sagt honum að stoppa þar sem hún hefði óttast að hann myndi skilja hana eftir á miðri Reykjanesbrautinni. Hann hefði ítrekað spurt hana hvort ekki væri allt í góðu en hún hefði ekki getað sagt neitt. 

Kohi hefði síðan fært hönd sína neðar, fyrir utan buxur hennar. Þá hefði hann ítrekað sagt henni að fara ekki að sofa. Hún hefði sofnað og vaknað við það að hann var búinn að setja hönd sína fyrir innan buxur hennar og væri að káfa á kynfærum hennar. Síðan hefði hann stoppað við einhvern afleggjara og farið að kyssa hana. 

Hún hafi vísað Kohi að götunni þar sem hún búi og sagt að hún hefði gengið þaðan heim en hann ekið á brott.

Hafi í upphafi verið góður við hana

Stúlkan hafi sagt að hún hefði beðið manninn um að skutla sér á sjúkrahús þar sem henni hefði liðið illa en hann ekki viljað það. Hann hefði í upphafi verið góður við hana og gefið henni vatn eftir að hún kastaði upp og látið hana hafa klút til að þrífa hendurnar og kodda til að leggjast á og hefði hún því treyst honum. 

Neitaði sök

Í niðurstöðukafla dómsins segir að Kohi hafi neitað sök í málinu. Hann hafi byggt sýknukröfu á því að háttsemin sem honum var gefin að sök væri ósönnuð og að framburður stúlkunnar hefði verið á reiki, markaður af ölvunarástandi hennar og niðurstaða málsins yrði ekki á honum byggð.

Umatvik hafi aðallega verið við framburð mannsins og stúlkunnar að styðjast. Óumdeilt væri að Kohi hafi verið við störf sem leigubílstjóri þegar atvik gerðust og byggi hann sjálfur á því að hann hafi átt von á greiðslu frá Stúlkunni fyrir farið. 

Lýsing atvika í ákæru sé í meginatriðum í samræmi við framburð stúlkunnar við rannsókn málsins. Beri Kohi og stúlkunni um margt saman um atburðarásina utan meints kynferðisbrots. Þannig sé óumdeilt að stúlkan kom inn í leigubifreið mannsins í miðbæ Reykjavíkur. Þaðan hafi hann henni til Reykjanesbæjar og á leiðinni hafi hann þurft að stoppa vegna vanlíðanar stúlkunnar og hún kastað upp minnst einu sinni, út um glugga, á meðan bifreiðin var á ferð. 

Einnig sé óumdeilt að maðurinn hafi eitthvað aðstoðað stúlkuna á meðan hún var að kasta upp og að þrífa sig í kjölfar þess. 

Sagði snertingar ekki hafa verið af kynferðislegum toga

Í dóminum segir að Kohi hafi borið um margt á sama veg fyrir dómi og við rannsókn málsins og hann ekki útilokað að hafa snert stúlkuna en borið um að snertingarnar hefðu ekki verið kynferðislegs eðlis. 

Hann hafi kveðist hafa haldið stúlkunni þegar hún kastaði upp út um glugga bifreiðarinnar en hann hefði óttast að hún dytti út um gluggann og nefnt einnig að hún hefði þá opnað bílhurðina. Þessu hafi stúlkan alfarið hafnað og einnig nefnt, eins og maðurinn tók undir, að hún hefði verið í bílbelti þegar bifreiðin var á ferð. 

Kohi hafi nefnt að við þessar aðstæður hefði hann haldið við bak hennar og einnig annars staðar þar sem hann náði taki. Þá hafi hann kveðist hafa snert hana á bringunni til að kanna hvort hún væri með hjartslátt þegar hann hefði óttast um hana. Hann hafi einnig borið um það að á sama tíma hefði hún verið mikið á hreyfingu og gæti hann því hafa snert brjóst hennar óvart en einnig hafi komið fram hjá honum að hreyfingar stúlkunnar  gætu hafa skýrst af því að bifreiðin hefði verið á ferð. 

Hjá lögreglu hafi hann kveðist hafa sett kinn sína að kinn stúlkunnar þegar hann kannaði með andardrátt hennarog þá einnig sett fingur inn í nef hennar. 

Þá hafi hann kveðist hafa haldið um mitti stúlkunnar þegar hann var að aðstoða hana þegar hún kastaði upp fyrir utan bifreiðina. Stúlkan hafi staðfest að þá hefði maðurinn staðið bak við hana og stutt hana. 

Maðurinn hafi sagt að hann hefði í svona tilviki einnig haldið um maga hennar og þá þurft að ýta henni upp svo hún dytti ekki. Við þær aðstæður hefði hönd hans getað farið hvert sem er og gæti hann þá hafa komið óvart við kynfæri stúlkunnar.

Fjarstæðukenndar skýringar

Í dóminum segir að framburður mannsins yrði svo skilinn að hann hafi miðað að því að setja fram skýringar á því hvers vegna lífsýni úr honum hefðu fundist á brjósti stúlkunnar og lífsýni úr henni á honum og hvers vegna stúlkan hafi borið um þær snertingar sem í ákæru greinir. Hann hafi þannig leitast nokkuð við að fegra hlut sinn með vísan til þess að hann hefði allan tímann verið að aðstoða stúlkuna. 

Þá hafi framburður hans um það hvort stúlkan hafi snert stýri og gírstöng bifreiðarinnar verið misvísandi, annars vegar hafi hann sagt að hún hefði verið úti um allt í bifreiðinni og hins vegar að hann hefði ekki séð hana snerta þessa staði. 

„Eiga þessar lýsingar og skýringar ákærða sér takmarkaða stoð í framburði brotaþola eða málsgögnum. Er það mat dómsins að þær séu um margt fjarstæðukenndar.“

Framburður stúlkunnar stöðugur

Í dóminum segir að í ljósi framangreinds verði að telja framburð mannsins einstaklega ótrúverðugan auk þess að hafa verið á reiki. Verði á engan hátt fallist á þær ástæður sem hann hafi nefnt fyrir því hvers vegna hann snerti stúlkunna og að hann hefði hugsanlega snert hana óviljandi.

Framburður stúlkunnar hefði hins vegar verið stöðugur í gegnum meðferð málsins og samhljóða um öll þau atriði sem máli skipta við úrlausn þess, en hún hafi þrisvar gefið skýrslur við rannsókn málsins auk þess að gefa skýrslur fyrir dómi. 

Strax í upphafi hafi hún lýst Kohi, bifreið hans, munum í bifreiðinni og þeim stöðum sem hún mundi eftir að hann hefði stoppað á í samræmi við það sem síðar kom í ljós. Óumdeilt sé að stúlkan hafi verið mjög ölvuð og veik og dottað á leiðinni og að það hafi haft áhrif á minni hennar hvað varðar þá staði sem maðurinn stoppaði á.

Það verði ekki talið draga úr trúverðugleika hennar og heldur ekki það að fyrir dómi mundi hún ekki hvernig hún hefði setið þegar maðurinn nuddaði kynfæri hennar. Þá staðfesti niðurstöður rannsóknar á lífsýnum að maðurinn snerti brjóst stúlkunnar og í því sambandi skipti ekki máli hvort lífsýnið hafi verið á geirvörtu brotaþola eða utar á brjóstinu. 

Einnig verði af þeim ráðið að lífsýni frá stúlkunni bárust á stýri og gírstöng en ekkert liggi fyrir um að stúlkan hafi snert þessa staði og verði á því byggt að maðuinn hafi sjálfur borið lífsýnin frá stúlkunni á stjórntæki bifreiðarinnar. Þá sé óumdeilt að maðuinn snerti þessa staði við akstur bifreiðarinnar eftir meint brot.

Nauðgunin haft áhrif á stúlkuna til lengri tíma

Í dóminum segir að fyrir liggi með framburði þeirra vitna sem hittu stúlkuna í kjölfar brotsins, og einnig megi sjá það á upptöku úr búkmyndavél, að stúlkan var í miklu uppnámi eftir atvikið. Einnig verði af þeim ráðið að stúlkan skýrði þeim eins frá atvikum og í samræmi við skýrslur hennar við meðferð málsins. 

Eins og atvikum er háttað sé ekkert fram komið sem bendi til þess að aðkoma föður stúlkunnar að skýrslu sem tekin var af henni á heimili hennar í kjölfar brotsins hafi haft áhrif á framburð hennar, eins og maðurinn hafði byggt á. 

Einnig verði af framburðum foreldra stúlkunnar og sálfræðings sem hún leitaði til eftir atvikið ráðið að það hafi haft mikil áhrif á hana til lengri tíma. Sálfræðingurinn hafi lýst því að hann hefði einnig hitt stúlkuna áður en atvikið átti sér stað og væri augljós munur á líðan hennar til hins verra. 

„Er það mat dómsins að framburður brotaþola fái stoð í framangreindum gögnum. Með vísan til þess verður niðurstaða málsins byggð á trúverðugum framburði brotaþola og telur dómurinn sannað að ákærði hafi viðhaft þá háttsemi sem greinir í ákæru.“

Nýtti sér slæmar aðstæður og traust

Í kafla dómsins um ákvörðun refsingar segir að Kohi hafi ekki verið sakfelldur fyrir refsiverða háttsemi áður.

Til refsiþyngingar hafi hins vegar verið litið til þess að brot hans hafi verið gróft, hann hafi notfært sér slæmar aðstæður stúlkunnar og ungan aldur og það traust sem hún bar til hans vegna stöðu hans sem leigubifreiðastjóri. 

Með brotinu, sem hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir stúlkuna , hafi hann beitt hana grófu ofbeldi og brotið gegn kynfrelsi hennar. Með vísan til framangreinds og sakarefnismálsins þyki refsing Kohi hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár. Í ljósi alvarleika brotsins sé ekki efni til að skilorðsbinda refsingu hans.

Auk þess var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni 1,8 milljónir króna í miskabætur, skipuðum verjanda hans 2,4 milljónir í málsvarnarlaun og þóknun réttargæslumanns stúlkunnar, 900 þúsund krónur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×