Formúla 1

Liðs­stjóri Red Bull yfir­heyrður vegna á­sakana um ó­við­eig­andi hegðun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Christian Horner hefur notið mikillar velgengni sem liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1.
Christian Horner hefur notið mikillar velgengni sem liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1. getty/Clive Rose

Christian Horner, liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1, verður yfirheyrður vegna ásakana um óviðeigandi hegðun á föstudaginn.

Á mánudaginn bárust fréttir af því að óviðeigandi hegðun Horners í garð starfsmanns Red Bull sé til rannsóknar. Red Bull sagðist taka ásakanirnar mjög alvarlega og hóf rannsókn á þeim.

Í samtali við De Telegraaf í Hollandi hafnaði Horner ásökununum. Red Bull hefur ekki gefið út hvað felst nákvæmlega í þeim en enskir fjölmiðlar greina frá því að þær snúi að óviðeigandi og stjórnsamri hegðun Honers í garð kvenkyns starfsmanns.

Utanaðkomandi aðili sér um rannsóknina á hegðun Horners og á föstudaginn verður hann yfirheyrður.

Horner hefur verið liðsstjóri hjá Red Bull síðan liðið byrjaði að keppa í Formúlu 1 2005. Síðan þá hefur liðið sjö sinnum orðið heimsmeistari ökuþóra og sex sinnum heimsmeistari bílasmiða. Á síðasta tímabili vann Red Bull 21 af 22 keppnum og Max Verstappen varð heimsmeistari með miklum yfirburðum. Næsta tímabil í Formúlu 1 hefst 2. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×