Formúla 1

Æðsti prestur hjá Red Bull til rann­sóknar vegna ó­við­eig­andi hegðunar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Christian Horner ásamt eiginkonu sinni, gömlu Kryddpíunni Geri Halliwell.
Christian Horner ásamt eiginkonu sinni, gömlu Kryddpíunni Geri Halliwell. getty/Song Haiyuan

Christian Horner, liðsstjóri Formúla 1 meistara Red Bull, er til rannsóknar vegna óviðeigandi hegðunar.

De Telegraaf í Hollandi greinir frá því að óviðeigandi hegðun Horners í garð starfsmanns Red Bull sé til rannsóknar. Utanaðkomandi aðili sér um hana.

„Eftir að fyrirtækinu var gert viðvart um ákveðnar nýlegar ásakanir hefur sjálfstæðri rannsókn verið hleypt af stokkunum,“ sagði talsmaður Red Bull við De Telegraaf.

„Þessi rannsókn, sem stendur nú yfir, er á ábyrgð utanaðkomandi, sérhæfð lögmanns. Fyrirtækið tekur þessa hluti mjög alvarlega og rannsókninni lýkur eins fljótt og hagkvæmt er.“  

Horner hefur stýrt Red Bull skipinu síðan það lagði úr höfn 2005. Síðan þá hefur liðið sjö sinnum orðið heimsmeistari ökuþóra og sex sinnum heimsmeistari bílasmiða.

Horner er giftur Kryddpíunni fyrrverandi, Geri Halliwell. Þau eiga eina dóttur saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×