Handbolti

Grinda­vík ofar­lega í huga Ís­lendinga á EM í hand­bolta

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Fáni Grindavíkur í stúkunni.
Fáni Grindavíkur í stúkunni. Vísir/Vilhelm

Grindavík er greinilega ofarlega í huga íslenska stuðningsfólksins sem nú er statt á leik Íslands og Ungverjalands á EM karla í handbolta.

Ísland og Ungverjaland mætast nú í hreinum úrslitaleik um toppsæti C-riðils. Þá þarf íslenska liðið sigur til að komast með þrjú stig áfram í milliriðil. Fjöldi Íslendinga fylgdi liðinu út en það er ljóst að Grindavík er ofarlega í huga fólks í stúkunni. 

Ásamt því að flagga fána Grindavíkur þá hefur Sérsveitin, stuðningsmannasveit Íslands, sungið söngva til heiðurs Grindavíkur. Meðal annars var stuðningsfólk Íslands beðið um að standa upp fyrir Grindavík.

Hér að neðan má sjá beina textalýsingu frá leik Íslands og Ungverjalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×