Handbolti

Austur­ríki ekki í erfið­leikum með Rúmeníu

Dagur Lárusson skrifar
Leikmenn Austurríkis fagna.
Leikmenn Austurríkis fagna. Vísir/Getty

Austurríki fór létt með Rúmeníu í fyrsta leik liðsins á EM í Þýskalandi.

Ísland mætti Austurríki tvíveigis síðastliðna vikuna þar sem Ísland hafði betur en í dag var komið að fyrsta leik Austurríkis á mótinu.

Lokatölur í leiknum voru 31-24 en markahæstir í leiknum voru Demis Grigoras hjá Rúmeníu með sex mörk og Sebastian Frimmel einnig með sex mörk.

Liðin leika í B-riðli með Spáni og Króatíu sem mætast seinna í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×