Lífið

Álf­hildur selur sjarmerandi útsýnisperlu í Vestur­bænum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Álfhildur heldur úti hinum vinsæla Instagram-reikningi Barnabitar.
Álfhildur heldur úti hinum vinsæla Instagram-reikningi Barnabitar.

Álfhildur Ösp Reynisdóttir læknir ogt tveggja barna móðir hefur sett sjarmerandi íbúð sína í Vesturbæ Reykjavíkur á sölu. Eignin á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi með stórbrotnu útsýni til suðvesturs og norður. Ásett verð er 73,9 milljónir.

Samhliða starfinu heldur Álfhildur úti síðunni Barnabitar á Instagram þar sem deilir hugmyndum og fróðleik um mat handa börnum.

„Mjög skrítið að þessi sé komin á sölu,“ skrifar Álfhildur og deilir mynd af eigninni í story á Instagram.

Húsið var reist árið 1956 og hefur fengið miklar endurbætur síðastliðin ár.Fasteignaljósmyndun

Um er að ræða mikið endurnýjaða 90 fermetra íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi á vinsælum stað í Vesturbænum. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi sem var nýlega tekið í gegn.

Stofa og borðstofa er í opnu og björtu rými þar sem falleg hönnun og bjartir litir fanga augað. Frönsk hurð skilur stofu og hjónaherbergi að, þaðan er útgengt á suðursvalir.

Stofan er björt með glugga á tvo vegu.Fasteignaljósmyndun
Frönsk hurð skilur hjónaherbergi og stofu að á sjarmerandi máta.Fasteignaljósmyndun

Í eldhúsi er falleg og nýleg viðarinnrétting með góðu skápaplássi. Svartar Sjöur eftir danska hönnuðinn Arne Jacobsen prýða rýmið auk klassíska loftljóssins, PH-5, eftir Louis Poulsen.

Á veggnum í stofunni má sjá hvítar Montana hillur, hönnun frá árinu 1982 og appelsínugulan Flowerpot lampa, hönnun frá árinu 1968.

Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis.

Eldhúsið er nýlega endurnýjað.Fasteignaljósmyndun
Gangurinn skilur stofu og eldhús að.Fasteignaljósmyndun
Sniðug lausn með fataskápana í þessu rúmgóða hjónaherbergi.Fasteignaljósmyndun
Barnaberbergið er notalega innréttað.Fasteignaljósmyndun
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Fasteignaljósmyndun


Tengdar fréttir

Heldur úti Instagramsíðunni Barnabitar samhliða læknanámi í Danmörku

„Ég hef aldrei verið mikil matarmanneskja, borðað fáar tegundir og einhæft. Það hins vegar hvatti mig enn frekar til að „passa“ það að dóttir mín myndi ekki enda í sama pakka og ég“ segir Álfhildur Reynisdóttir sem heldur úti Instagramsíðunni Barnabitar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×