Fótbolti

Þýska lands­liðs­konan gleymdi að fara í stutt­buxurnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Giulia Gwinn er liðsfélagi Glódísar Perlu Viggósdóttur hjá Bayern München.
Giulia Gwinn er liðsfélagi Glódísar Perlu Viggósdóttur hjá Bayern München. Getty/Boris Streubel

Liðsfélagi Glódísar Perlu Viggósdóttir lenti í spaugilegri uppákomu í leik Bayern München í þýsku deildinni á dögunum.

Hér erum við að tala um þýsku landsliðskonuna Giulia Gwinn sem átti að koma inn á sem varamaður í leik Bæjara á móti Nürnberg.

Gwinn var búin að hita vel upp og var á leiðinni inn á völlinn eftir klukkutíma leik þegar hún uppgötvaði eitt.

Hún hafði gleymt að fara í stuttbuxurnar og var því ekkert á leiðinni inn á völlinn fyrr en hún bætti úr því.

Gwinn hljóp því inn í klefa og fann stuttbuxurnar sínar. Hún kom svo inn á völlinn nokkrum mínútum síðar.

Gwinn er í þýska landsliðinu og skoraði í báðum leikjum á móti Íslandi í haust. Hún fyrra mark þýska liðsins í 2-0 sigri á Íslandi á Laugardalsvellinum í októberlok og skoraði annað markið í 4-0 sigri á Íslandi í september.

Hér fyrir neðan má sjá mómentið þegar Gwinn áttaði sig á því að hún væri stuttbuxnalaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×