Innlent

Sátta­semjari frestar fundi um ó­á­kveðinn tíma

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari hjá Ríkissáttasemjara ákvað að fresta fundi í kjaradeilu SA og flugumferðarstjóra á öðrum tímanum í dag. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður.
Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari hjá Ríkissáttasemjara ákvað að fresta fundi í kjaradeilu SA og flugumferðarstjóra á öðrum tímanum í dag. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður. Vísir/Sigurjón

Samninganefndir flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins mættu á boðaðan fund hjá ríkissáttasemjara í morgun. Ekkert varð úr sameiginlegum fundi og á öðrum tímanum í dag ákvað sáttasemjari að fresta fundinum. Nýr fundur í kjaradeilunni hefur ekki verið boðaður. 

Fundarlotu í kjaradeilu flugumferðarstjóra og SA átti að vera framhaldið kl. 10 í morgun hjá Ríkissáttasemjara. Samninganefndirnar funduðu í sitt hvoru lagi en enginn sameiginlegur fundur var haldinn í morgun. 

Snúin staða

Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari í deilunni ákvað svo á öðrum tímanum í dag að fresta fundi. Annar fundur í deilunni hefur ekki verið boðaður. 

„Staðan  er býsna snúin. Við höfum ákveðið að fresta fundi í bili. Ég mun vera í sambandi við samningsaðila á næstu dögum og ákveð þá hver næstu skref verða. Þetta er snúin staða. Það ber talsvert á milli,“ segir Aldís.

Aðspurð hvort samninganefndirnar hafi fengið einhver skilaboð segir Aldís:

„Skilaboðin eru að taka tvö skref afturábak og bakka úr þeirri stöðu sem við erum í núna. Stundum er gott að bakka og horfa yfir landið og miðin og sjá hvort við sjáum ekki einhverja nýja lausn.“ 

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri SA sagði í fréttum í gær þegar sé búið að bjóða flugumferðarstjórum það sama og aðrar stéttir fengu í síðustu kjaraviðræðum. Launahækkun að hámarki 66 þúsund krónur. Arnar Hjálmsson formaður félags flugumferðarstjóra sagði þá að enn væri langt á milli í kjaradeilunni. Sú stétt sem flugumferðarstjórar bæru sig við í kjaraviðræðunum væru atvinnuflugmenn. 

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×