Fótbolti

Ó­ska­­mót­herji Orra í sex­tán liða úr­­slitum Meistara­­deildarinnar

Aron Guðmundsson skrifar
Orri Steinn í leik með FC Kaupmannahöfn
Orri Steinn í leik með FC Kaupmannahöfn Vísir/Getty

Orri Steinn Óskars­son náði þeim merka á­fanga með fé­lags­liði sínu FC Kaup­manna­höfn að tryggja sér sæti í sex­tán liða úr­slitum Meistara­deildar Evrópu á dögunum. Liðið hefur lagt af velli stór­lið á borð við Manchester United og Gala­tasaray á leið sinni þangað og vill Orri Steinn mæta einu til­teknu stór­liði í sex­tán liða úr­slitunum.

Sviðið sem Orri og fé­lagar stiga fram á verður bara stærra. Fram undan eru 16-liða úr­slit Meistara­deildarinnar sem dregið verður í á mánu­daginn kemur.

FC Kaup­manna­höfn mun dragast á móti einu af þeim liðum sem bar sigur úr býtum í sínum riðli í riðla­keppninni.

Það er stór­lið á borð við Manchester City, Arsenal, At­letico Madrid, Barcelona, Dort­mund og Real Madrid. Orri er með ó­ska­mót­herja í huga fyrir sex­tán liða úr­slitin.

„Ég væri til í að fá Real Madrid,“ segir Orri Steinn í samtali við Vísi. „Það yrði skemmti­legt að eiga tök á því að fara og spila á Santiago Berna­beu. Það er flottur völlur og geggjuð ára í kringum Real Madrid. Það yrði skemmti­legt að kíkja þangað.“

Real Madrid er eitt stærsta fé­lags­lið í heimi og það lið sem hefur oftast unnið þá keppni sem nú ber heitið Meistara­deild Evrópu. Alls fjór­tán sinnum.

Og þó svo að FC Kaup­manna­höfn muni fara inn í ein­vígi sitt í sex­tán liða úr­slitunum sem litla liðið á móti vel flestum af þessum mögu­legu and­stæðingum sem taldir eru upp hér fyrir ofan er alveg ljóst að þeir and­stæðingar muni ekki taka neinu sem gefnu í því ein­vígi.

Frammi­stöður FC Kaup­manna­hafnar hingað til hafa munu hafa unnið þeim inn virðingu hjá stærstu liðum Evrópum og þá er ljóst að engu liði mun finnast þægi­legt að halda á Parken.

„Ég myndi segja að úti­leikur á Parken sé með erfiðari leikjum sem þú færð í Meistara­deildinni. Töl­fræðin talar sínu máli þar. Þá hafa frammi­stöður okkar á þeim velli sýnt að við getum spilað vel á móti hvaða liði sem er.

Það er mjög sterkt fyrir okkur að hafa svona vígi á bak­við okkur. Og búa til þennan ótta hjá and­stæðingum okkar að mæta okkur á þessum velli.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×