Lífið

GDRN selur í­búðina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Guðrún Ýr og Árni Steinn hafa búið sér sjarmerandi heimili í Árbænum.
Guðrún Ýr og Árni Steinn hafa búið sér sjarmerandi heimili í Árbænum.

Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, þekkt sem GDRN, og kærasti hennar Árni Steinn Steinþórsson hafa sett fallega íbúð sína við Hraunbæ 196 til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 59,9 milljónir. 

Um er að ræða 106,6 fermetra íbúð á þriðju hæð í húsi sem var byggt árið 1967. 

Íbúðin er björt og notalega innréttuð.Pálsson
Fallegt útsýni úr eldhúsinu.Pálsson

Parið hefur búið sér afar notalegt heimili þar sem má sjá hina fullkomnu blöndu af nýjum og gömlum húsgögnum. Í eldhúsi er notalegur borðkrókur með stórum og glugga. Innréttingin er úr við með góðu skápaplássi og stein á borðum.

Stofa og borðstofa eru samliggj­andi í björtu al­rými, þaðan er út­gengt á svalir. Fallegir munir prýða rýmið, þar á meðal Hansa-hillur, hannaðar af danska hönnuðinum Poul Cadovius í kringum árið 1952 og Flower-Pot lampa, danska hönnun frá árinu 1968.

Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, eitt baðherbergi og geymsla. 

Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis. 

Hansa-hillurnar njóta sín vel í stofunni.Pálsson
Stofa og borðstofa er rúmgóð með parket á gólfi.Pálsson
Tvö barnaherbergi eru í íbúðinni búin fataskápum.Pálsson

Tengdar fréttir

Magnaðar mæður

Birtingarmynd móðurhlutverksins er fjölbreytt og flókin. Þar má nefna nýbakaðar mæður  margra barna mæður, stjúpmæður, einstæðar mæður og verðandi mæður, svo fátt eitt sé nefnt.

Mikilvægt að geta verið GDRN inn á milli

Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð vakti fyrst athygli í íslensku samfélagi árið 2017 þegar hún sendi frá sér sitt fyrsta lag, Ein. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan en hún hefur meðal annars farið með aðalhlutverk í Netflix seríunni Katla og gefið út nokkrar plötur ásamt því að eignast barn. Næstkomandi laugardag 11. febrúar verða hún og Magnús Jóhann með útgáfutónleika í Hörpu á plötunni Tíu íslensk sönglög sem þau sendu frá sér síðastliðið haust. Blaðamaður tók púlsinn á þessu öfluga tvíeyki og fékk að heyra nánar frá nýjum veruleika Guðrúnar.

Frægir fjölguðu sér árið 2022

Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2022 og Vísir greindi frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×