Erlent

Heilu fjöl­skyldurnar þurrkaðar út í á­rásum Ísraelshers

Heimir Már Pétursson skrifar
Konur syrgja ættingja sem létust í sprengjuárás Ísraelshers á Rafah.
Konur syrgja ættingja sem létust í sprengjuárás Ísraelshers á Rafah. AP/Fatima Shbair

Heilu fjölskyldurnar voru þurrkaðar út í árásum Ísraelshers á bæi á Gazaströndinni síðast liðna nótt. Varnarmálaráðherra Ísraels segir að tekist hafi að hafa hendur í hári nokkurra hryðjuverkamanna sem tóku þátt í árásum og mannránum í Ísrael í byrjun október.

Eftir árásir Hamasliða á Ísrael hinn 7. október þar sem um 1.400 óbreyttir borgarar féllu og um 240 voru teknir í gíslingu, einbeitti Ísraelsher sér að norðurhluta Gazastrandarinnar, samnefnda borg og nágrenni hennar. Íbúum svæðisins var ráðlagt að flýja suður á bóginn.

Undanfarið hafa Ísraelsmenn hins vegar gert miklar loftárásir á mið- og suðurhluta Gaza og sent inn öflugan landher í þeim tilgangi að eyðileggja búðir og vopnageymslur Hamas og handsama leiðtoga þeirra. Síðast liðna nótt gerðu þeir loftárás á íbúðabyggð í bænum Deir al-Balah á mið-Gaza og Maghazi flóttamannabúðirnar. Að minnsta kosti 33 létust í þeim arásum, þar af 14 konur og fjögur börn.

Lítið stendur eftir af húsum sem voru sprengd upp í Rafah síðast liðna nótt.AP/Fatima Shbair

„Það er gríðarleg eyðilegging. Hús nágranna okkar var sprengt. Flestir þeirra létust, meira en 30 manns. Þeir hýstu flóttafólk. Megi guð blessa sál þeirra. Enginn hérna hefur neitt með stríðið að gera. Við erum óbreyttir borgarar. Það er engin andspyrna á götunum. Það er ekkert. Við erum öll óbreyttir borgarar,“ sagði Momen Mabrouk.

Í morgun leitaði fólk að ástvinum sínum í rústum húsa í bænum Rafah, syðst á Gaza, eftir öflugar árásir Ísraelshers síðst liðna nótt. Að minnsta kosti tuttugu og þrír létust í þeim árásum, þeirra á meðal börn. Fólkið tilheyrði flest aðeins þremur fjölskyldum. Islam Harab missti þrjú barna sinna.

Islam Harab með látinn son sinn í fanginu og lík tvíbura dætra hans fyrir framan sig.AP/Fatima Shbair

„Fjögur hús voru sprengd með þremur eldflaugum frá F16 herþotum. Í mínu húsi voru níu flóttamenn frá Gazaborg. Shujaiya og Zeitoun dóu ásamt tvíburadætrum mínum Maríu og Jude og little sonur minn Ammar dó líka,“ sagði Harab þar sem hann sat með lík sonar síns í fanginu með lík dætra sinna við fætur sér.

Yoav Gallant varnarmálaráðherra Ísraels segir herinn ekki ætla að vera um alla framtíð á Gaza en hann færi ekki fyrr en búið væri að uppræta Hamas. Fjöldi Hamasliða hefði gefist upp.

Yoav Gallant varnarmálaráðherra Ísraels segir Hamasliða aðeins hafa tvo kosti, að deyja eða gefast upp.AP

„Á meðal þeirra sem gefast upp eru hryðjuverkamenn sem tóku þátt í aðgerðunum 7. október.Þeir sem í morðæði drápu börn og nauðguðu konum eru nú í þeirri stöðu að hafa aðeins tvo kosti: að deyja eða gefast upp,“ sagði varnarmálaráðherrann.

Herinn væri við það að brjóta Hamas á bak aftur í norðurhlutanum í og við Gazaborg. Aðgerðum yrði haldið áfram í suðurhlutanum.


Tengdar fréttir

Vilja að Ísrael verði vikið úr Eurovision

Hátt í sjö þúsund manns hafa skorað á Ríkisútvarpið að neita þátttöku í Eurovision nema Ísrael verði vísað úr keppni. Útvarpsstjóri hefur sagt að ekki standi til að Ísland dragi sig úr keppni í mótmælaskyni. Almenningur virðist nokkuð sammála um að Ísrael eigi ekki að fá að keppa. 

Trúir ekki á einhliða þvingunaraðgerðir gegn Ísrael

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra telur ekki ráðlegt að Ísland ráðist ein þjóða í þvingunaraðgerðir gegn Ísrael til að knýja á um vopnahlé á Gasa. Þá er óvíst hvernig Ísland muni ráðstafa atkvæði sínu á neyðarfundi Sameinuðu þjóðanna því þar fari fram „lifandi samtöl“ og hlutir geti breyst hratt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×