Belling­ham tókst ekki að tryggja Real enn einn sigurinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jude var á skotskónum í dag.
Jude var á skotskónum í dag. Guillermo Martinez/Getty Images

Jude Bellingham skoraði eina mark Real Madríd í 1-1 jafntefli við Real Betis í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Real er í harðri toppbaráttu við Girona af öllum liðum en fyrir leik dagsins voru liðin jöfn að stigum á toppi deildarinnar. Það var því ljóst að gestirnir frá Madríd þurftu á sigri að halda í dag en það var ekki að sjá á spilamennsku liðsins.

Staðan í leik Betis og Real var markalaus í hálfleik en leikurinn var heldur lokaður. Á 53. mínútu komust gestirnir yfir þökk sé marki enska miðjumannsins Jude Bellingham. Brahim Díaz með stoðsendinguna.

Heimamenn létu það ekki slá sig út af laginu og jafnaði Aitor Ruibal metin ekki löngu síðar. Staðan orðin 1-1 og reyndust það lokatölur leiksins.

Real eru nú með 39 stig á toppi deildarinnar en Girona er sæti neðar með stigi minna en á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira