Innlent

Enginn slasaðist al­var­lega

Jón Þór Stefánsson og Telma Tómasson skrifa
Rútan er nokkuð stór.
Rútan er nokkuð stór. Vignir Heiðarsson

Enginn slasaðist alvarlega í rútuslysi á Holtavörðuheiði á þriðja tímanum í dag.

Viðbragðsaðilar hafa flutt alla af slysstað, flesta í Staðarskála, en nokkrir fóru á sjúkrahúsið á Akranesi til frekari skoðunar.

Um var að ræða þýska ferðamenn, 27 farþega, auk fararstjóra og bílstjóra.

Mikil hálka var á heiðinni og bálhvasst að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Hópslysaáætlun viðbragðsaðila var virkjuð vegna slyssins í dag, en rútan valt af veginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×