Innlent

Hafi keypt vín fyrir and­lega fatlaðan alkó­hól­ista og heimtað kyn­líf

Árni Sæberg skrifar
Landsréttur hefur heimilað að strokusýni verði tekið af manninum.
Landsréttur hefur heimilað að strokusýni verði tekið af manninum. Vísir/Vilhelm

Landsréttur hefur fallist á kröfu Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um heimild til að taka strokusýni úr munni manns, sem grunaður er um kynferðisbrot. Hann er sagður hafa keypt áfengi fyrir andlega fatlaða konu, sem er alkóhólisti í þokkabót, og viljað fá borgað með kynlífi.

Þetta segir í úrskurði Landsréttar, sem kveðinn var upp þann 14. nóvember síðastliðinn. Þá var úrskurður Héraðsdóms Norðurlands eystra staðfestur, en hann hafði verið kveðinn upp daginn áður.

Í greinargerð Lögreglustjóra segir að konan sé andlega fötluð og samkvæmt upplýsingum félagsþjónustu sveitarfélagsins sem hún býr í sé hún alkóhólisti.

Neitaði algjörlega að gefa sýni

Hún hafi lýst atvikum með þeim hætti að maðurinn hafi nokkrum sinnum farið í Vínbúðina fyrir hana og keypt áfengi. Maðurinn hafi viðurkennt slíkt athæfi. 

Samkvæmt frásögn konunnar muni hann í vor eða sumar hafa farið í Vínbúðina fyrir hana og keypt rauðvínskassa og viljað fá borgað með kynlífi og hún hafi látið það eftir honum. 

Það sé ekki alveg ljóst á rannsóknargögnum málsins hvenær meint brot eigi að hafa átt sér stað ef það hafi á annað borð gerst. Sakborningur neiti sök og segist aldrei hafa stundað kynlíf með konunni. 

Við rannsókn málsins hafi verið lagt hald á muni í svefnherbergi konunnar sem sendir hafi verið í rannsókn. Maðurinn segist aldrei hafa komið í svefnherbergi konunnar. Ef þar finnist nothæf lífssýni sé nauðsynlegt að mati lögreglu og ákæruvalds að geta borið þau sýni saman við DNA-sýni úr manninum. Hann hafi neitað algjörlega að heimila lögreglu að taka slíkt sýni.

Grunaður um alvarlegan glæp

Í greinargerð Lögreglustjórans er krafan rökstudd með þeim rökum að að mati lögreglu sé nauðsynlegt að fá slíkt sýni úr sakborningi fyrir framgang rannsóknarinnar og hægt sé að fullyrða að slík sýnataka úr munni sakbornings muni verða honum að meinalausu. 

„Verið er að rannsaka meinta nauðgun sem er með alvarlegustu sakamálum sem geta komið upp í hverju þjóðfélagi og varðar allt að 16 ára fangelsisrefsingu.“

Í niðurstöðu héraðsdóms, sem staðfest var með vísan til forsendna, segir að maðurinn sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem varðað getur fangelsisrefsingu að lögum. Fyrirhuguð líkamsrannsókn í þágu rannsóknar málsins verði gerð honum að meinalausu.

Því væri Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra heimilt að taka stroksýni úr munni mannsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×