Körfubolti

Með brotið rif­bein eftir að keyrt var á hann

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kelly Oubre Jr. mun ekki troða á næstunni.
Kelly Oubre Jr. mun ekki troða á næstunni. Mike Mulholland/Getty Images

Keyrt var á Kelly Oubre Jr., leikmann Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta, á laugardag. 

Í yfirlýsingu frá 76ers kemur fram að Oubre Jr. hafi verið á gangi nálægt heimili sínu í miðbæ Philadelphia þegar keyrt var á hann. Hann er með brotið rifbein ásamt því að vera meiddur á mjöðm og hægri fótlegg. 

Farið var með hinn 27 ára gamla Oubre á sjúkrahús en þar sem ástand hans var stöðugt fékk hann að fara heim nokkrum klukkustundum síðar.

Atvikið átti sér stað eftir leik liðsins gegn Detroit Pistons en um var að ræða sjöunda sigur liðsins í röð. Philadelphia 76ers hefur gefið út að ástand leikmannsins verði endurskoðað að viku liðinni.

Kelly Oubre Jr. gekk í raðir Philadelphia 76ers á árinu og hefur spilað vel á leiktíðinni. Er hann með 16.3 stig að meðaltali í leik ásamt því að taka 5.1 frákast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×