Körfubolti

Tap hjá Harden í fyrsta leik: „Þetta var svo­lítið skrítið“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
James Harden átti ágætis leik í Madison Square Garden í nótt.
James Harden átti ágætis leik í Madison Square Garden í nótt. getty/Rich Schultz

James Harden lék sinn fyrsta leik fyrir Los Angeles Clippers þegar liðið tapaði fyrir New York Knicks, 111-97, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Philadelphia 76ers lét loks undan kröfum Hardens í síðustu viku og skipti honum til Clippers. Harden vandaði sínum gömlu vinnuveitendum ekki kveðjurnar á fyrsta blaðamannafundi sínum sem leikmaður Clippers og sagði að Sixers hefði verið með hann í ól.

Harden var í byrjunarliði Clippers gegn Knicks, lék í 31 mínútu, skoraði sautján stig og gaf sex stoðsendingar. Hann hitti úr sex af níu skotum sínum í leiknum.

Reyndi að fylgja innsæinu

„Það var svolítið skrítið að spila án þess að hafa tekið þátt í æfingaleik eða æft almennilega. Ég gerði bara það sem ég kann en reyndi að fylgja innsæinu og því sem ég hef gert síðustu ár. Ég fór bara út á völl og spilaði og hugsaði um leikinn og reyndi að gera hann auðveldari fyrir alla aðra,“ sagði Harden eftir frumraunina með Clippers.

Kawhi Leonard var stigahæstur í liði Clippers með átján stig. Russell Westbrook skoraði sautján stig líkt og Harden. Clippers hefur unnið þrjá af fyrstu sex leikjum sínum á tímabilinu.

Julius Randle og RJ Barrett fóru fyrir Knicks. Sá fyrrnefndi skoraði 27 stig og sá síðarnefndi 26 stig.

Jókerinn samur við sig

Nikola Jokic var með þrefalda tvennu þegar meistarar Denver Nuggets sigruðu New Orleans Pelicans, 134-116. Serbinn skoraði 35 stig, tók fjórtán fráköst og gaf tólf stoðsendingar. Denver hefur unnið sjö af fyrstu átta leikjum sínum í vetur.

LeBron James sótti ekki gull í greipar síns gamla liðs þegar Los Angeles Lakers laut í lægra haldi fyrir Miami Heat, 108-107. LeBron skoraði þrjátíu stig fyrir Lakers og var stigahæstur á vellinum. Jimmy Butler skoraði mest fyrir Miami, eða 28 stig. Bam Adebayo var með 22 stig, tuttugu fráköst og tíu stoðsendingar.

Joel Embiid skoraði 48 stig og tók ellefu fráköst þegar Sixers sigraði Washington Wizards á heimavelli, 146-128. Embiid hitti úr sautján af 25 skotum sínum í leiknum.

Úrslitin í NBA í nótt

  • Knicks 111-97 Clippers
  • Detroit 109-120 Golden State
  • Indiana 152-111 San Antonio
  • Orlando 102-117 Dallas
  • Philadelphia 146-128 Washington
  • Brooklyn 125-129 Milwaukee
  • Miami 108-107 LA Lakers
  • Chicago 130-113 Utah
  • Houston 122-97 Sacramento
  • Minnesota 114-109 Boston
  • OKC 126-117 Atlanta
  • Denver 134-116 New Orleans
NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×