Innlent

„Við verðum að kunna okkur hóf í notkuninni“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Sigurður Ingi leggur áherslu á að frumvarpið fái umfjöllun í þinginu sem fyrst.
Sigurður Ingi leggur áherslu á að frumvarpið fái umfjöllun í þinginu sem fyrst. Vísir/Vilhelm

Samgönguráðherra leggur áherslu á að frumvarp sem tekur á notkun rafhlaupahjóla fái meðferð í þinginu sem fyrst. Þó hjólin séu fínasta samgöngubót verði fólk að kunna sér hóf.

Í Kompás var greint frá því að árlega fari allt að tuttugu manns í endurhæfingu á Grensás vegna mænu- og heilaskaða eftir slys á rafhlaupahjóli. Um fjórðungur allra umferðaslysa verða á hjólunum.

Líkt og kom fram í þættinum hefur samgönguráðherra boðað aukið regluverk í kringum hjólin í frumvarpi sem nú liggur í samráðsgátt. Gert er ráð fyrir að lögreglan fái heimildir til að taka á ölvunarakstri, aldursskilyrði sett og fleiri atriði.

Hann segir frumvarpið væntanlegt í þingið á næstu vikum.

„Ég hef nú bara verið að leggja áherslu á að koma því fyrst þangað inn, ég held að á þeim tíma sem það kom fram upphaflega þá voru kannski meira skiptar skoðanir um ákveðna hluti þess sem þar eru sem ég held að menn hafi í dag í ljósi mjög margra alvarlegra slysa meiri skilning á,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra.

Norðurlöndin hafa flest gripið til einhverra takmarkana þegar kemur að notkun leiguhjóla og svipar frumvarp Sigurðar til þeirra skrefa sem Norðmenn hafa tekið.

„Og þeir eru komnir með tölur um ótrúlegan árangur af þessari leið sem þeir fóru og er nokkuð sambærileg þeirri sem við ætlum að fara. Áskorunin er alls staðar sú sama. Þetta er ný og frábær tækni til samgangna en við verðum einhvern veginn að kunna okkur hóf í notkuninni.“

Hann segist ekki eiga von á öðru en að frumvarpið verði samþykkt.

„Einfaldlega held ég að þessi fjöldi slysa sem hefur ratað í umræðuna sem er ágætt til að vara fólk við og sú staðreynt að einn fjórði af öllum alvarlegum slysum í landinu eru vegna þessarar notkunar og oft hjá börnum og ungmenni, þá hljótum við að vera tilbúin að skoða að setja einhvers konar regluverk í kringum það.“


Tengdar fréttir

Fjöldi kærður og sektaður eftir slys á rafhlaupahjóli

Lögregla hefur á þessu ári kært og sektað um hundrað manns sem hafa dottið á rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. Aðalvarðstjóri umferðardeildar segir óhæft hversu algeng slysin eru og telur að taka þurfi á málinu.

Hjólin éti upp árangurinn

Samhliða fjölgun rafhlaupahjólaslysa fjarlægjast Íslendingar markmið um fækkun umferðarslysa. Samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum er talinn nema um fjörutíu milljörðum á ári.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×