Lífið

Há­tíðar­lína inn­blásin af drottningu blómanna

Íris Hauksdóttir skrifar
Hátíðarlína Hildar Yeoman kom út í dag.
Hátíðarlína Hildar Yeoman kom út í dag. Saga Sig

Hátíðarlína Hildar Yeoman kom út í dag en hún er partur af tónlistarhátíðinni Icelandic Airwaves. Línan nefnist In the name of the rose og segir hönnuðurinn, Hildur vera yfir sig hrifna af útkomunni. 

„Við vorum að heilluð af þessu fallega blómi sem er sannkölluð drottning blómanna. Það sem er spennandi við rósina að hún er ekki bara falleg, en líka smá hættuleg með öllum sínum þyrnum.“

Hönnuðurinn, Hildur Yeoman segist himinlifandi með línuna sem er innblásin af drottningu blómanna. Saga Sig

Línan er sannkölluð hátíðarlína, hún inniheldur mikið af flaueli, glansandi efnum, pallíettum og skemmtilegum sniðum sem eru glæsileg fyrir partý tímabilið sem er að hefjast.

Flíkur sem henta öllum kynjum

„Okkur er mikið í mun að gera fjölbreytt snið sem henta breiðum hópi kvenna svo flestar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Einnig er gaman að minnast á það að mikið af flíkunum okkar eru unisex. Prentaðar skyrtur, oversized jakkaföt og klassískar prjónaflíkur sem henta öllum kynjum.

Prentin í flíkunum hönnum við en þau eru flest unnin út frá teikningum eftir mig eða hafa að geyma hluti sem tengjast innblæstrinum og þema línunnar.

Við tókum myndir af línunni með frábærum hópi fólks í Þjóðleikhúsinu. Saga Sig ljósmyndari tók myndirnar, Ísak Freyr farðaði fyrirsæturnar en Anna Claussen sá um stíliseringu.“

Hér fyrir neðan má sjá brot af því besta en fyrirsæturnar eru þau Vaka Agnarsdóttir söngkona Inspector Spacetime, Birnir Ingason fótboltastjarna í Víking , Eydís Barke , Dóra Lilja og Rósa Bóasdóttir flugfreyja.

Fyrirsæturnar voru í algjörum sérflokki.Saga Sig

Glæsilegur toppur með skemmtilegum smáatriðum. Saga Sig

Rósin er helsti innblástur fatalínunnar.Saga Sig

Svart og seiðandi hátíðarsett.Saga Sig

Fallegt sett sem hentar vel við flest tilefni.Saga Sig

Mynstrin fanga fegurð blómanna vel.Saga Sig

Flíkurnar eru margar hverjar unisex.Saga Sig

Glæsilegur hátíðarkjóll.Saga Sig

Tengdar fréttir

Kyli­e Minogu­e í ís­lenskri hönnun

Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman nýtur mikilla vinsælda hér heima sem og erlendis en Hollywood stjörnurnar virðast keppast um að klæðast flíkum eftir hana. Nýjasta stjarnan á listann er ástralska söngkonan Kylie Minogue sem skartaði skærgrænum kjól úr smiðju Hildar á dögunum. 

Glæsi­legt götu­partý Hildar Yeoman

Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman fagnaði Menningarnótt eins og svo margir síðastliðna helgi en eins og oft áður hélt hún glæsilegt götupartý fyrir utan verslun sína á Laugarveginum. Dansarar klæddust nýjustu línunni og dilluðu sér við iðandi tóna frá Rósu Birgittu sem kallar sig DJ De la Rosa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×