Innlent

Opin sam­veru­stund vegna bana­slyssins

Árni Sæberg skrifar
Samverustundin verður haldin í Ástjarnarkirkju á morgun.
Samverustundin verður haldin í Ástjarnarkirkju á morgun. Ástjarnarkirkja

Opin samverustund verður haldin í Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði á morgun, miðvikudaginn 1. nóvember, klukkan 18 vegna banaslyssins á Ásvöllum í gær.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að prestar Ástjarnarkirkju séra Arnór Bjarki Blomsterberg og séra Bolli Pétur Bollason muni haf umsjá með stundinni. Samverustundin verði vettvangur fyrir samfélagið til að votta virðingu sína, sýna samstöðu, og stuðning. 

Greint var frá því í morgun að átta ára drengur hafi látist í umferðarslysi á Ásvöllum í Hafnarfirði síðdegis í gær.

Tilkynning um slysið barst viðbragðsaðilum klukkan 17:10 og héldu viðbragðsaðilar strax á vettvang. Slysið varð syðst á Ásvöllum við bifreiðastæði á milli Ásvallalaugar og íþróttahúss Hauka. Drengurinn var þar á reiðhjóli þegar hann varð fyrir steypubíl.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.


Tengdar fréttir

Haukar og starfsfólk BM Vallár harmi slegin

Starfsfólk BM Vallá er harmi slegið vegna banaslyss sem varð við Ásvelli í Hafnarfirði á sjötta tímanum í gær. Knattspyrnufélagið Haukar sendir fjölskyldu átta ára drengs sem lést samúðarkveðjur. Hann var iðkandi hjá félaginu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×