Tónlist

Syngja um sam­farir á eld­hús­borðinu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin Kvikindi var að senda frá sér nýtt lag. Hljómsveitina skipa Friðrik MargrétarGuðmundsson og Brynhildur Karlsdóttir sem sjást hér á myndinni ásamt Valgeiri Skorra trommara.
Hljómsveitin Kvikindi var að senda frá sér nýtt lag. Hljómsveitina skipa Friðrik MargrétarGuðmundsson og Brynhildur Karlsdóttir sem sjást hér á myndinni ásamt Valgeiri Skorra trommara. Aðsend

Lista- og poppteymið Kvikindi var að senda frá sér glænýtt lag sem ber þann ögrandi titil Ríða mér. Kvikindi hreppti nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins og kemur fram á tónlistarhátíðinni Airwaves í kvöld.

Hér má heyra lagið:

Klippa: Kvikindi - Ríða mér

Kynlíf og heimspólítík

„Lagið fjallar í senn um kynlíf og heimspólitík og er sungið frá sjónarhóli stúlku sem sér ekki sólina fyrir ástinni, sér ekki út fyrir eldhúsgluggann af losta og þrá jafnvel þótt heimurinn þar fyrir utan sé á heljarþröm,“

segir í fréttatilkynningu.  

Ef marka má textann vilja meðlimir hljómsveitarinnar stunda kynlíf og það ofan á eldhúsborði. 

„Eins og Kvikindunum einum er lagið er söngurinn berskjaldaður um leið og tónlistin byggir undir hann haglega smíðaða kraftballöðu sem myndi sóma sér vel í stórum sal í Kópavogi. Þetta er fyrsta lagið sem við fáum að heyra af nýrri breiðskífu sem kemur út á næsta ári,“ segja meðlimir sveitarinnar. 

Hljómsveitin Kvikindi á tónlistarhátíðinni Innipúkinn síðastliðna Verslunarmannahelgi.Aðsend

Eiginmaðurinn og bleikt ský

„Í aðra röndina fjallar þetta lag um Matthías eiginmann minn með mjög bókstaflegum hætti. Á sama tíma fjallar það almennt um bleikt ský sem gerir böl heimsins að bakgrunnstónlist,“ segir Brynhildur Karlsdóttir söngkona.

Ásamt Brynhildi er Kvikindi mynduð af Friðriki MargrétarGuðmundssyni og Valgeiri Skorra trommara.

„Það verður alltaf til óvæntur og einstakur efniviður þegar við Brynhildur hittumst, slúðrum og spreytum okkur á hljóðverinu. Það liggur beinn strengur frá hjartanu, í hljóðnemann og að takkaborðinu í þessu tilfelli,“ segir Friðrik MargrétarGuðmundsson.

Lagið verður flutt á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni ásamt fleiri lögum þeirra Kvikinda. Þau stíga á sviðið Airwaves Center í Kolaportinu í kvöld 2. nóvember klukkan 18:30. Lagið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.


Tengdar fréttir

„Ekkert erfitt við tónlist nema að fá pening fyrir hana“

Hljómsveitin Kvikindi samanstendur af Brynhildi Karlsdóttur, Friðriki Margrétar-Guðmundssyni og Valgeiri Skorra Vernharðssyni. Með tónlist sinni leggja þau upp úr því að koma fólki til að dansa í gegnum tárin, finna stelpulegu hliðina og elska meira en tónlistin hefur alltaf verið hluti af þeirra lífi. Kvikindi eru tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

Þessi eru til­nefnd til Ís­lensku tón­listar­verð­launanna 2023

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna voru tilkynntar rétt í þessu en fjölbreyttur hópur ólíks tónlistarfólks er tilnefnt í ár. Verðlaunin verða veitt í Silfurbergi, Hörpu, miðvikudaginn 22. mars næstkomandi. Kynnar á verðlaunahátíðinni verða leik- og söngdrottningin Selma Björnsdóttir og rapparinn og leiklistarneminn Kristinn Óli Haraldsson (Króli).

„Rússíbaninn heldur áfram“

Rafpopphljómsveitin Kvikindi ætlar sér að halda langþráða útgáfutónleika fyrir plötuna Ungfrú Ísland á Húrra 10. mars næstkomandi. Blaðamaður tók púlsinn á meðlimum sveitarinnar en það er sannarlega viðburðaríkt ár að baki hjá þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×