Ó­vænt hetja hjá Juventus sem er komið á toppinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. Valerio Pennicino/Getty Images

Það voru tvö mörk dæmd af Moise Kean, framherja Juventus í kvöld. Það fyrra á 13. mínútu vegna einhverrar minnstu rangstöðu sem sést hefur frá upphafi mælinga. Þökk sé því var staðan markalaus í hálfleik.

Kean var aftur á ferðinni á 53. mínútu og aftur dæmdu myndbandsdómarar leiksins markið af. Skömmu síðar kom Andrea Cambiaso inn af bekknum en hann átti eftir að reynast hetja kvöldsins.

Það voru komnar sjö mínútur fram yfir venjulegan leiktíma þegar Arkadiusz Milik átti skalla sem hafnaði í stönginni. Cambiaso var fljótastur að átta sig, kom boltanum í netið og tryggði Juventus dramatískan 1-0 sigur. Það verður seint sagt að sigurinn hafi verið óverðskuldaður en heimamenn áttu 30 skot í leiknum.

Sigurinn lyftir Juventus á topp Serie A með 23 stig að loknum 10 leikjum. Bæði Mílanó-liðin, Inter og AC, geta hins vegar komist upp fyrir Juventus með sigrum á morgun. Inter mætir Roma á meðan AC Milan mætir Ítalíumeisturum Napólí.

Önnur úrslit

  • Sassuolo 1-1 Bologna
  • Lecce 0-1 Torino

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira