Viðskipti innlent

Pay­Ana­lytics hlaut Ný­sköpunar­verð­laun Ís­lands 2023

Atli Ísleifsson skrifar
Guðrún Þorgeirsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar PayAnalytics og Garðar Hauksson, stofnandi og tæknistjóri.
Guðrún Þorgeirsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar PayAnalytics og Garðar Hauksson, stofnandi og tæknistjóri. Hugverkastofa

Hugbúnaðarfyrirtækið PayAnalytics hlaut í gær Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023. Fyrirtækið hefur þróað jafnlaunahugbúnað sem gerir launagreiðendum kleift að mæla launabil, loka launabilum og halda launabilum lokuðum.

Það var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem afhenti verðlaunin á Nýsköpunarþingi í Grósku í gær. 

Það voru Guðrún Þorgeirsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar PayAnalytics og Garðar Hauksson, stofnandi og tæknistjóri, sem veittu verðlaununum viðtöku.

Í tilkynningu segir að Guðrún hafi meðal annars sagt að þegar hugmyndin hafi kviknað að þróun hugbúnaðar sem einfaldaði notkun gagna og greininga til að loka launabilum hafi það verið mjög fjarlægt að innan nokkurra ára yrði hugbúnaðurinn markaðsleiðandi bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. 

„Gulleggið 2016, styrkur Tækniþróunarsjóðs 2018, framsækin íslensk fyrirtæki sem komu í viðskipti, fjárfesting Nýsköpunarsjóðs 2020 og fjárfesting Nýsköpunarsjóðs og Eyris Vaxtar árið 2021, voru allt lykiláfangar á vegferð okkar. Við erum stolt af því að bætast í hóp þeirra glæsilegu fyrirtækja sem hafa fengið Nýsköpunarverðlaun Íslands og teljum að árangur PayAnalytics endurspegli mikilvægi stuðnings öflugs íslensks sprotasamfélags,” er haft eftir Guðrúnu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ásamt Garðari Haukssyni og Guðrúnu Þorgeirsdóttur sem tóku við Nýsköpunarverðlaunum Íslands 2023 fyrir hönd PayAnalytics.Hugverkastofa

Stofnað 2018

„PayAnalytics var stofnað árið 2018 með það að markmiði að þróa hugbúnað til að auðvelda stórum og smáum fyrirtæki hvar sem er í heiminum að borga sanngjörn laun og vinna þannig gegn mismunun sem byggir á kyni, uppruna, aldri, kynhneigð eða öðrum þáttum sem ekki eiga að hafa áhrif á laun.

PayAnalytics sprettur upp úr sterku jafnréttisumhverfi á Íslandi og er því með fullmótaða vöru nú þegar flest lönd í heiminum er að hefja vinnu við að útrýma launabilum. Hugbúnaðurinn er þegar notaður til að greina laun hjá 40% þeirra sem vinna á Íslandi og hefur náð hraðri útbreiðslu í Evrópu og Norður-Ameríku. PayAnalytics er í notkun í 75 löndum og er notað daglega til að tryggja sanngjörn laun hjá yfir milljón manns hjá nokkrum af stærstu og þekktustu fyrirtækjum heims,“ segir í tilkynningunni. 

Í tengslum við Nýsköpunarverðlaunin veitir Íslandsstofa nýsköpunarfyrirtæki ársins þriggja milljón króna styrk til alþjóðlegrar markaðssetningar, í samvinnu við Business Sweden.

Sjá má upptöku frá Nýsköpunarþingi í spilaranum að neðan. 

Rökstuðningur dómnefndar

„Hugbúnaður PayAnalytics leiðir til mikils samfélagslegs ávinnings. Hann gerir launagreiðendum kleift að taka ákvarðanir sem mismuna ekki. Það gerir hann með því að færa flókið viðfangsefni yfir í aðgengilegar niðurstöður. Lausnin er í notkun hjá mörgum stærstu fyrirtækjum heims og er einnig notendavæn í meðalstórum og smærri fyrirtækjum, sem er mikilvægt þar sem flest starfsfólk vinnur hjá slíkum fyrirtækjum.

Félagið mun áfram sinna mikilvægu þróunarstarfi umfram jafnlaunahugbúnaðinn þar sem raunverulegu jafnrétti í launum verður ekki náð fyrr en öll kyn og allir þjóðfélagshópar hafa sömu möguleika á að komast í hærra borguð störf. Slíkur jöfnuður næst ekki eingöngu með launabreytingum heldur verður að breyta samsetningu þess hóps sem kemst í hærra launuð störf. Þar er PayAnalytics leiðandi í heiminum í dag en hyggst leggja mikinn kraft í að þróa þá lausn áfram.

Guðrún Þorgeirsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar PayAnalytics.Hugverkastofa

PayAnalytics er leiðandi í fræðslu og umræðu um launabil. Útgefið fræðsluefni er að finna á sjö tungumálum í formi rafbóka, greina og hlaðvarpa. Með því hreyfir félagið umræðuna í rétta átt og tryggir að fleiri viti að það er hægt að ná niður og koma í veg fyrir launabil.

Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um sé að ræða sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýrri tækni og hugmynd og hafi þekkingu og reynslu til að sinna framúrskarandi þróunarstarfi. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð. Það er mat dómnefndarinnar að PayAnalytics sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands árið 2023,“ segir um rökstuðning dómnefndar.

Nýsköpunarverðlaun Íslands

Nýsköpunarverðlaunin Íslands eru veitt af Hugverkastofunni, Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.


Tengdar fréttir

Lauf Forks og Si­dekick Health hlutu Ný­sköpunar­verð­launin

Nýsköpunarverðlaunin vegna ársins 2021 og 2022 voru afhent á Nýsköpunarþingi í Grósku í dag. Fyrirtækin Lauf Forks og Sidekick Health hlutu verðlaunin en það var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem afhenti þau.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×