Viðskipti innlent

Gerður ráðin til BBA//Fjeldco

Atli Ísleifsson skrifar
Gerður Guðmundsdóttir.
Gerður Guðmundsdóttir. Aðsend

Gerður Guðmundsdóttir lögmaður hefur verið ráðin til starfa hjá BBA//Fjeldco þar sem hún verður hluti af skattateymi stofunnar.

Í tilkynningu segir að Gerður hafi áður starfað hjá Skattinum á eftirlits- og rannsóknarsviði en þar áður hjá Skattrannsóknarstjóra og á skatta- og lögfræðisviði Deloitte. Hún hafi víðtæka reynslu af skattamálum og hafi sinnt fjölbreyttum verkefnum tengdum því sviði.

„Gerður útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2015 þar sem hún sérhæfði sig í skatta- og félagarétti og hlaut lögmannsréttindi árið 2017. Um þessar mundir er Gerður að ljúka tveggja ára meistaragráðu í skattarétti við Oxford háskóla.

Hún hefur einnig sinnt stundakennslu við lagadeild Háskóla Íslands í íslenskum og alþjóðlegum skattarétti og birt ritrýndar fræðigreinar. Jafnframt hefur hún sinnt stundakennslu í aðferðarfræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×