Börsungar með fullt hús stiga

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Fermín López skoraði glæsilegt mark fyrir Barcelona gegn Shakhtar Donetsk.
Fermín López skoraði glæsilegt mark fyrir Barcelona gegn Shakhtar Donetsk. getty/Pedro Salado

Barcelona er með fullt hús stiga í H-riðli Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 sigur á heimavelli gegn Shaktar Donetsk. 

Bæði mörk heimamanna komu um miðbik fyrri hálfleiks, framherjinn Ferran Torres kom boltanum fyrstur í netið og markið var staðfest eftir athugun VAR dómara. Hinn tvítugi miðjumaður Fermín López setti svo annað markið aðeins nokkrum mínútum síðar. 

Gestirnir frá Shaktar náðu að klóra í bakkann á 62. mínútu með marki frá Georgiy Sudakov, en mistókst að jafna leikinn og sækja sér stig. Þeir sitja í 3. sæti riðilsins með einn sigur úr þremur leikjum. 

Ungstirnið Marc Guiu, sautján ára leikmaður Barcelona sem vakti athygli á dögunum þegar hann skoraði aðeins augnabliki eftir að hafa komið inn á í fyrsta leik sínum fyrir liðið, var skipt inn á fyrir Joao Felix á 75. mínútu, en tókst ekki að komast á blað í þetta sinn. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira