Sport

Brady hleður Brock lofi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Purdy hefur verið frábær í vetur og var það einnig í fyrra.
Purdy hefur verið frábær í vetur og var það einnig í fyrra. Getty

Brock Purdy, leikstjórnandi San Francisco 49ers í NFL-deildinni, er á bleiku skýi þessa dagana. Lið hans hefur unnið fimm fyrstu leiki sína á leiktíðinni og er honum líkt við goðsögnina Tom Brady. Sá síðarnefndi hefur mikið álit á Purdy.

Purdy hefur komið sem stormsveipur inn í deildina en hann fékk óvænt tækifæri sem leikstjórnandi 49ers seint á síðustu leiktíð og hefur ekki litið um öxl. Trey Lance og Garoppolo, leikstjórnendur hjá 49ers í fyrra, voru báðir meiddir sem leiddi til þess að Purdy fékk stóra tækifærið.

Hans fyrsti leikur var einmitt gegn Tampa Bay Buccaneers sem var leitt af Brady. Hann varð í þeim leik fyrsti leikstjórnandinn í sögunni til að leggja Brady að velli í frumraun sinni í deildinni. Þeir félagar eiga sameiginlegt að hafa verið valdir afar seint í nýliðavalinu en sýnt styrk sinn þegar í deildina var komið.

Brady var spurður um Purdy í Let's Go-hlaðvarpinu á dögunum og jós lofi yfir unga leikstjórnandann.

„49ers eru að standa stig frábærlega, ég spilaði við hann í fyrra, og þeir eru með mjög gott lið,“ segir Brady.

„Þú heyrir ekki um gæja eins og Brock Purdy fyrr en þeir eru farnir að gera ótrúlega hluti úti á velli. Svo þetta er skemmtileg saga. Ég vona að þetta haldi svona áfram fyrir hann vegna þess að hann virðist vera auðmjúkur ungur maður sem vill ná langt. Hann hefur gaman af því að mæta á völlinn og sýna hvað í honum býr,“.

Fróðlegt verður að sjá hvort Brock fari svipaða leið og Brady. Purdy var valinn síðastur í nýliðavalinu árið 2022 en hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn eftir að hann fékk tækifæri. Brady þekkir það en hann var valinn 199. í nýliðavalinu árið 1999 og sýndi og sannaði að hann átti heima töluvert ofar.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×