Sport

Kærastanum finnst NFL sýna Taylor Swift full mikinn áhuga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það hefur varla farið framhjá neinum að Taylor Swift hefur mætt á síðustu tvo leiki Kansas City Chiefs.
Það hefur varla farið framhjá neinum að Taylor Swift hefur mætt á síðustu tvo leiki Kansas City Chiefs. getty/David Eulitt

Travis Kelce, leikmanni Kansas City Chiefs, finnst NFL ganga full langt í umfjöllun sinni um samband þeirra Taylors Swift.

Kelce og Swift hafa verið að stinga saman nefjum og tónlistarkonan hefur mætt síðustu tvo leiki Chiefs í NFL-deildinni. Myndavélarnar beinast oftar en ekki að Swift, svo mikið að mörgum finnst nóg um.

Í hlaðvarpi sínu bræðranna Travis og Jasons Kelce viðurkenndi Höfðinginn að honum fyndist athyglin á sambandi þeirra Swifts vera full mikil.

„Það er skemmtilegt þegar þeir sýna hverjir eru á leiknum. Það gerir aðeins meira fyrir stemmninguna og upplifunina af því að horfa á leikinn. En þeir ganga aðeins of langt,“ sagði Travis og Jason bætti við að NFL væri enn að venjast því að vera með stórstjörnur á leikjum í deildinni.

„Ég held að NFL sé ekki jafn vant því stjörnurnar mæti á leikina. Körfuboltinn er með þetta allt á hreinu. Þær sitja allar við völlinn. Þeir sýna þær einu sinni eða tvisvar en snúa sér svo aftur að leiknum.“

Chiefs hefur unnið báða leikina sem Swift hefur mætt á, gegn Chicago Bears og New York Jets. Liðið er með þrjá sigra og eitt tap á tímabilinu. Næsti leikur Chiefs er gegn Minnesota Vikings á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×