Marka­laust í Meistara­deildar­endur­komu New­cast­le

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
AC Milan og Newcastle gerðu markalaust jafntefli í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
AC Milan og Newcastle gerðu markalaust jafntefli í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Marco Luzzani/Getty Images

AC Milan og Newcastle gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í fyrstu umferð F-riðils Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld.

Þetta var fyrsti leikur Newcastle í Meistaradeild Evrópu í um tuttugu ár og fær liðið afar krefjandi verkefni í F-riðli þar sem AC Milan, Paris Saint-Germain og Dortmund verða mótherjar þeirra.

Þrátt fyrir nokkur ákjósanleg færi heimamanna í AC Milan vildi boltinn ekki inn og niðurstaðan varð því markalaust jafntefli og liðin skipta stigunum á milli sín.

Á sama tíma mættust Young Boys og RB Leipzig í G-riðli þar sem gestirnir frá Þýskalandi höfðu betur, 1-3. Mohamed Simakan, Xaver Schlager og Benjamin Sesko sáu um markaskorun Leipzig, en Mezchack Elia skoraði eina mark Young Boys.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira