Sport

Sá mynd­band af ungum að­dáanda herma eftir sér og færði honum á­ritaða treyju

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tyreek Hill kom ungum aðdáanda á óvart.
Tyreek Hill kom ungum aðdáanda á óvart. Getty/Samsett

Tyreek Hill, útherji Miami Dolphins í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, kom ungum aðdáanda á óvart eftir að hann sá guttann spila í treyju merktri sér.

Myndband af hinum unga Lil Franco, sem kallar sig stundum „Mini Cheetah,“ fór eins og eldur um sinu um netheima á dögunum. Franco var þá að spila amerískan fótbolta með vinum sínum, klæddur í Miami Dolphins treyju merktri Tyreek Hill, og reyndi eftir bestu getu að herma eftir átrúnaðargoði sínu.

Hill, sem oft er kallaður „Cheetah,“ gat ekki annað en dáðst að hæfileikum Franco. Sá stutti lék á als oddi í myndbandinu og Hill gerði sér ferð til að hitta þennan hæfileikaríka dreng.

Hill kom drengnum og vinum hans heldur betur á óvart og færði Lil Franco áritaða treyju sem hann hafði klæðst í sigri gegn Los Angeles Chargers nokkrum dögum áður.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×