Veður

Norð­læg átt og hlýjast sunnan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður víða á bilinu þrjú til ellefu stig að deginum.
Hiti á landinu verður víða á bilinu þrjú til ellefu stig að deginum. Vísir/Vilhelm

Lítill hæðarhryggur á Grænlandshafi nálgast nú landið og ríkir norðlæg átt á landinu í dag, yfirleitt fremur hæg, þrír til átta metrar á sekúndu, en nokkru hvassara austanlands.

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að það verði léttskýjað víða um land, en skýjað austantil og sums staðar skúrir þar fram eftir degi.

Hiti verður víða þrjú til ellefu að deginum og verður hlýjast sunnantil á landinu í dag, en norðaustanlands á morgun.

Á morgun verður hæðarhryggurinn kominn yfir Austurland og snýst þá vindur til suðlægrar áttar.

„Dáliltar skúrir vestantil, en bjartviðri eystra. Milt veður að deginum, en líkur á næturfrosti, einkum inn til landsins. Lægð á Grænlandshafi, nálgast landið á miðvikudag. Gengur því í austankalda með rigningu öðru hvoru, en mun hægara og þurrt fyrir norðan og hlýnar dálítið,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og yfirleitt bjartviðri, en dáliltar skúrir vestantil, einkum síðdegis. Hiti 5 til 11 stig að deginum, en nær frostmarki yfir nóttina.

Á miðvikudag: Austlæg átt, 8-13 m/s, með súld eða dálítil rigning öðru hvoru, en mun hægari og bjart með köflum norðantil. Hiti 7 til 12 stig yfir daginn.

Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skýjað með köflum, en lítilsháttar væta suðaustantil. Milt veður.

Á föstudag: Hægviðri, skýjað með köflum og smávæta á stöku stað. Áfram milt veður.

Á laugardag: Vaxandi suðaustanátt með rigningu sunnan- og vestnlands um kvöldið og hlýnandi veður.

Á sunnudag: Útlit stífa suðaustanátt með talsverðri rigningu og hlýindum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×