Sport

Svæfður í ellefu tíma meðan hann var flúraður

Valur Páll Eiríksson skrifar
Dak Prescott ákvað að láta flúra allan fótlegginn í einu og ekki var litlu tjaldað til.
Dak Prescott ákvað að láta flúra allan fótlegginn í einu og ekki var litlu tjaldað til. Samsett

Dak Prescott, leikstjórnandi Dallas Cowboys í NFL-deildinni, fór engan milliveg þegar hann lét flúra á sér fótlegginn á dögunum. Heljarinnar verk prýðir nú legg hans frá mjöðm niður að ökkla eftir heilmikla aðgerð.

Prescott fékk sér flúrið í sumar á meðan undirbúningstímabilið fyrir komandi leiktíð í NFL stóð yfir. Deildin fór af stað með sigri Detroit Lions á ríkjandi meisturum Kansas City Chiefs í gær og fer á fullt á sunnudaginn.

Ekki eins manns verk.Instagram/@ortega_ink

Eigandinn hafði ekki hugmynd

Prescott lét menn hjá liði sínu, Dallas Cowboys, ekki vita af aðgerðinni fyrir fram. Hann var svæfður í ellefu klukkustundir á meðan nokkrir flúrarar unnu að verkinu samtímis og þá var svæfingalæknir á staðnum auk annarra heilbrigðisstarfsmanna til að gæta þess að allt færi vel fram.

„Ég vissi svo sannarlega ekki af því að hann hefði verið svæfður í yfir tíu klukkutíma. Bara svo það sé á hreinu þá þekki ég húðflúr ekki neitt. Ég þyrfti kannski að kynna mér þetta. Ég hafði ekki hugmynd um að svæfingar gæti verið þörf við slíkt,“ segir eigandi liðsins, Jerry Jones, sem greiðir himinhá laun leikstjórnandans, sem er launahæsti leikmaður í sögu Dallas Cowboys.

„Ég sagði: „Vá, hvað í fjáranum kom fyrir fótinn á þér“,“ segir þjálfari Cowboys, Mike McCarthy, um viðbrögð sín við uppátæki Prescott.

„Hann sýndi mér legginn og ég segi Jesús kristur, hvað tók þetta langan tíma? Þetta hlýtur að hafa tekið alla vikuna. Hann svarar „nei, nei, þetta var gert allt í einu“. Þá sýndi hann mér myndband af þessu, guð minn góður.“ bætti þjálfarinn við.

„Ég er klikkaður“

Prescott var þá inntur eftir svörum um þessi viðbrögð yfirmanna sinna.

„Ég var ekki að fara að segja þeim frá þessu fyrir fram, en gerði það eftir á. Þegar ég sýndi Mike þetta daginn eftir og hann sá hversu bólginn fótleggurinn á mér var spurði hann hvað í fjáranum hefði gerst,“ segir Prescott.

„Fólk mun halda að þetta sé klikkað og þetta er vissulega alveg klikkað,“ segir Prescott jafnframt.

„Ég skil það. En ég er líka klikkaður. Það er málið, ég veit að ég er það. Ég er ekki hræddur við neitt.“ bætir hann við.

Flúrið nær yfir nánast allan fótlegg Prescott frá toppi til táar og þar kemur fyrir Daffy Duck úr Looney Tunes þáttunum að sýna fagn Prescotts með einn fingur uppi, þekktar byggingar úr Dallas-borg, æskuheimili Daks, svört slanga (e. Black Mamba) til að heiðra Kobe Bryant, Jumpman-merki Michaels Jordan og mynd af Muhammad Ali.

Veislan af stað um helgina

Prescott og félagar hans í Dallas Cowboys hefja leik í NFL-deildinni seint á sunnudagskvöld, tuttugu mínútum eftir miðnætti, er þeir mæta New York Giants.

Þar á undan fer fjöldi leikja fram sem öllum verða gerð góð skil í Red Zone undir styrkri stjórn Scott Hanson, þar sem flakkað er á milli valla og öll helstu atriði sýnd. Red Zone verður sýnt í beinni útsendingu, í fyrsta sinn í íslensku sjónvarpi á sunnudaginn kemur.

Sú beina útsending stendur yfir frá 17:00 til miðnættis og er með öllu laus við auglýsingar.

Svört slanga til heiðurs Kobe Bryant heitnum.Instagram/@ortega_ink
Daffy Duck, háhýsi í Dallas og fleira prýðir fótlegg Prescott.Instagram/@ortega_ink
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×