Innlent

Fjölskylda Sofiu þakklát fyrir heimboð að Bessastöðum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjölskylda Sofiu með Guðna forseta á tröppum Bessastaða.
Fjölskylda Sofiu með Guðna forseta á tröppum Bessastaða. Valda Nicola

Fjölskylda Sofiu Sarmite Kolesnikovu sem lést á Selfossi í apríl síðastliðnum þáði heimboð Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands að Bessastöðum á dögunum. Systir Sofiu er full af þakklæti fyrir heimboðið.

Lögreglan á Suðurlandi hefur andlátið til rannsóknar. Karlmaður sem grunaður er um manndráp var látinn laus í gær eftir að hafa setið átján vikur í gæsluvarðhaldi. Hann sætir farbanni næstu vikurnar. Lögregla bíður niðurstöðu krufningar.

Valda Nicola, systir Sofiu, segir í færslu á Facebook að líf fjölskyldunnar hafi tekið 360 gráðu snúning síðan í apríl.

„En við höfum staðið saman í gegnum erfiðustu þögn og storm. Ég veit að einn dagur mun koma þegar við munum öll dansa í þessari rigningu,“ segir Valda.

Á myndum sem Valda Nicola birtir á Facebook má sjá frá heimsókn hennar og fjölskyldunnar á Bessastaði þar sem Guðni og Eliza tóku á móti þeim.

„Það var sannur heiður fyrir okkur fjölskylduna að fá einkaboð frá Guðna og Elizu á Bessastaði, kaffið var frábært og sögurnar voru skemmtilegar,“ segir Valda Nicola.

„Það var svo hugljúft að hlusta á Guðna Th. Jóhannesson segja frá lífi sínu, atburðum sem hann hafði verið á, fólki sem hann hafði hitt. Þetta fékk mig til að átta mig á því að það er svo mikið eftir af kökunni að við erum ekki einu sinni hálf búin með hana.“

Þá hafi börnunum líkað svo vel við forsetahjónin að Guðni og Eliza megi eiga von á boði í næsta afmæli.

„Guð blessi Ísland. Lífið heldur áfram.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×