Erlent

Reyna að stöðva leið­angur að flaki Títaniks

Kjartan Kjartansson skrifar
Títanik leggur upp í örlagaríka jómfrúarferð sína frá Southampton á Englandi 10. apríl árið 1912. Skipið sökk í Norður-Atlantshafið tveimur dögum síðar.
Títanik leggur upp í örlagaríka jómfrúarferð sína frá Southampton á Englandi 10. apríl árið 1912. Skipið sökk í Norður-Atlantshafið tveimur dögum síðar. AP

Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit.

Fyrirtækið RMST í Georgíu í Bandaríkjunum sem á rétt að bjargmunum úr flaki Títaniks stefnir að því að senda fjarstýrðan kafbát að því í maí á næsta ári. Hann á að taka myndir af flakinu, þar á meðal inni í því þar sem göt hafa myndast á skrokk skipsins. Til stendur að safna munum úr braki í kringum flakið og mögulega lausa muni innan úr því, að sögn AP-fréttastofunnar.

Þessu mótmælir bandaríska alríkisstjórnin fyrir dómstóli í Virginíu. Hún segir að alríkislög og samkomulag sem bandarísk og bresk stjórnvöld gerðu sín á milli um að líta á flakið sem grafreit banni að farið sé inn í skipsskrokkinn eða hreyft við munum þar. 

RMST segist ekki hafa áform um að opna skipsskrokkinn eða fjarlægja nokkurn hluta flaksins að svo stöddu. Fyrirtækið ætli að hafa samráð við Haf- og loftslagsststofnun Bandaríkjanna (NOAA) en telji sig ekki þurfa að sækja um leyfi. Fyrirtækið hefur nú þegar safnað og varðveitt þúsundir muna úr flaki Títaniks, að eigin sögn.

Fyrir þremur árum ætlaði sama fyrirtæki sér að skera gat á flakið til þess að ná í talstöð skipsins sem var notuð til þess að senda út örvæntingarfull neyðarköll. Þau áform fóru út um þúfur vegna kórónuveirufaraldursins og sambærilegt dómsmál þess og alríkisstjórnarinnar dagaði uppi.

Fleiri en 1.500 manns fórust þegar Títanik rakst á ísjaka og sökk árið 1912. Skipið var þá stærsta skip sem smíðað hafði verið og var talið ósökkvandi. Það sökk í jómfrúarferð sinni frá Southampton á Englandi til New York í Bandaríkjunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×