Innlent

Hyggst gefa út reglur um far­síma­notkun í grunn­skólum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ríkisstjónarfundur í Ráðherrabústaðnum Ásmundur Einar Daðason
Ríkisstjónarfundur í Ráðherrabústaðnum Ásmundur Einar Daðason Vísir/Vilhelm

Næstum öll börn í grunnskólum landsins eiga eigin farsíma, 95 prósent barna í 4. til 7. bekk og 98 prósent í 8. til 10. bekk. Um 7 prósent nemenda í 4. til 7. bekk nota netið daglega til að leysa skólaverkefni, 38 prósent nemenda í 8. til 10. bekk og 74 prósent framhaldsskólanema.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins en þar er greint frá því að ráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hafi ákveðið að setja af stað vinnu við reglur um farsímanotkun í grunnskólum landsins.

Notkunin er óvíða jafn mikil og hér á landi, segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að reglurnar verði unnar í víðtæku samráði við foreldra og börn, sveitarfélögin, skólastjórnendur, kennara og aðra hagaðila, og gert ráð fyrir að þær verði nýttar sem leiðbeinandi viðmið fyrir grunnskóla við setningu skólaregla um farsímanotkun.

Nokkrir skólar hafa þegar tekið upp reglur um farsímanotkun og jafnvel bannað hana, við misgóðar undirtektir.

„Notkun upplýsinga- og samskiptatækni gegnir mikilvægu hlutverki í skólastarfi en samhliða þarf að vinna markvisst gegn neikvæðum afleiðingum tækninnar á börn og ungmenni í íslensku menntakerfi,“ segir í tilkynningunni. 

„Nýjar rannsóknir benda til þess að mikil aukning sé í skjátíma, sérstaklega hjá börnum og að aukningin hafi meðal annars neikvæð áhrif á svefn, andlega og líkamlega heilsu barna. Þá hafa rannsóknir sýnt að takmarkanir á notkun farsíma í skólum bæta námsárangur, sérstaklega hjá nemendum sem eru með slakan námsárangur.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×