Innlent

Komu að hústöku­manni sem hafði lagt í­búðina í rúst

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Íbúðin var gjörsamlega í rúst þegar parið opnaði hurðina.
Íbúðin var gjörsamlega í rúst þegar parið opnaði hurðina.

Erlent par sem leigir stúdentaíbúð hjá Félagsstofnun stúdenta (FS) kom að hústökumanni þegar það opnaði íbúðina í fyrsta sinn. Maðurinn tók á rás en skildi eftir sig eiturlyf og íbúðina í rúst.

Parið deildi sögu sinni á samfélagsmiðlum en það leigði íbúð FS í Skjólgarði við Brautarholt 7 til 9 í Reykjavík. Parið hafði íbúðina á leigu frá júní en kom ekki til landsins fyrr en nýlega og fengu lyklana afhenta.

„Þegar við komum og opnuðum hurðina fundum við mann sem hafði augljóslega dvalið í íbúðinni í þó nokkurn tíma,“ segir í færslunni. „Maðurinn tók á rás út úr íbúðinni og hljóp niður stigann.“

Íbúðin var algjörlega í rúst vegna skemmdarverka. En í flýti sínum skildi maðurinn ýmsar eigur sínar eftir, einkum fíkniefni.

„Einhverra hluta vegna hafði þessi maður aðgang að byggingunni og íbúðinni,“ segir í færslunni.

Parið segist hafa látið háskólann vita og að þeim hafi verið hjálpað. Þau séu þó í miklu uppnámi eftir þessa uppákomu. Þá hafi þau einnig heyrt af fleiri sambærilegum tilfellum, þar sem hústökufólk hafi komið sér fyrir í tómum stúdentaíbúðum.

Annað húsnæði samdægurs

Heiður Anna Helgadóttir, þjónustustjóri hjá FS, segir að málið hafi verið leyst farsællega samdægurs. Annað húsnæði hafi verið fundið handa fólkinu. Að öðru leyti geti hún ekki tjáð sig um mál þessa fólks.

Aðspurð um hvort að FS sé með einhvers konar öryggiskerfi eða húsverði á stúdentagörðum segir Heiður að í flestum húsum séu svokallaðir garðprófastar. Það eru nokkurs konar húsverðir sem sjá um að allt sé í röð og reglu. Engin mönnuð gæsla sé hins vegar á svæðinu.

Þá segir Heiður að myndavélar séu í sameiginlegum rýmum á görðunum, þar á meðal í Skjólgarði. Einnig óskar FS eftir því að leigjendur láti stofnunina vita ef þeir eru fjarverandi í meira en tíu daga svo hægt sé að hafa auga með íbúðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×