Viðskipti erlent

Stórhækkuðu stýrivexti til að hægja á falli rúblunnar

Kjartan Kjartansson skrifar
Maður gengur fram hjá gjaldeyrisskiptastöð í Moskvu í gær. Dollarinn fór yfir hundrað rúblur.
Maður gengur fram hjá gjaldeyrisskiptastöð í Moskvu í gær. Dollarinn fór yfir hundrað rúblur. AP/Alexander Zemlianitsjenkó

Seðlabanki Rússlands ákvað að hækka stýrivexti í landinu um þrjú og hálft prósentustig á neyðarfundi í dag. Með ákvörðuninni reynir bankinn að bregðast við vaxandi verðbólgu og styrkja rúbluna sem er nú veikari en hún hefur verið eftir að innrásin í Úkraínu hófst í fyrra.

Stýrivextir í Rússlandi eru nú tólf prósent eftir hækkunina. Gengi rúblunnar hefur veikst um meira en þriðjung frá upphafi árs og hefur ekki verið lægra í tæpa sautján mánuði. Rúblan styrkti sig aðeins eftir að tilkynnt var um hækkunina en lækkaði aftur eftir því sem leið á daginn, að sögn AP-fréttastofunnar.

Maksim Oreshkin, efnahagsráðgjafi Vladímírs Pútín forseta, kenndi slælegri peningamálastjórn um veikt gengi gjaldmiðilsins í skoðanagrein í gær. Seðlabankinn hefði öll nauðsynleg verkfæri til þess að ná tökum á ástandinu.

Vaxandi útgjöld til hernaðarmála og íþyngjandi viðskiptaþvinganir vestrænna ríkja vegna innrásarinnar eru sagðar taka sinn toll af rússneska hagkerfinu. Verðbólga undanfarinna þriggja mánaða mælist 7,6 prósent. Seðlabankinn hafði áður hækkað stýrivexti sína um eitt prósentustig í síðasta mánuði til þess að stemma stigu við verðhækkunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×