Sport

Fyrrverandi leikmaður Ravens og Seahawks lést í mótorhjólaslysi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Alex Collins var aðeins 28 ára gamall þegar hann lést.
Alex Collins var aðeins 28 ára gamall þegar hann lést. Patrick Smith/Getty Images

Alex Collins, fyrrverandi leikmaður Baltimore Ravens og Seattle Seahawks, er látinn aðeins 28 ára að aldri.

Collins lenti í mótorhjólaslysi þegar hjól hans lenti á jepplingi í Flórída í gærkvöldi og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi.

Slysið átti sér stað um klukkan hálf ellefu á staðartíma í gærkvöldi og lenti hjól Collins á farþegahlið bílsins. Tildrög slyssins eru þó enn til rannsóknar hjá lögreglu.

Collins lék á sínum tíma 25 leiki fyrir bæði Baltimore Ravens og Seattle Seahawks á árunum 2016 til 2021 og skoraði hann 19 snertimörk.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×