Skoðun

Reikistjörnur

Sjón skrifar

Reikistjörnur

Einar Örn notaði tímann til að lesa.

Þær missa ekki meðvitund þótt þeim sé að blæða út.

Sprengjubrotin grafa sig dýpra í líkamana

og áður en þær deyja fela þær ungana sína á bakvið norðurljósasmiðjuna.

Hann las um reikistjörnur.


Ég var átta ára gamall 1971, þá tók ég þátt í því að safna peningum svo að íslendingar gætu keypt uppstoppaðann geirfugl á uppboði í London.

Á þeim tíma var lítið talað um náttúruvernd eða ábyrga meðferð á náttúrunni og náttúruauðlindum.

En við söfnun fésins, svo það væri hægt að kaupa þennan uppstoppaða fugl, varð að segja söguna alla og það var þá sem að ég og fleiri heyrðum í fyrsta skipti að síðasti geirfuglinn hafði verið drepinn af íslendingum.

Það var árið 1841 ef ég man rétt.

Það gerði mig meðvitaðann um það að ekki aðeins gætu dýr dáið út heldur hafði útrýming dýrs átt sér stað á Íslandi í íslenskri sögu.

Í dag hugsa ég með mér að skuld okkar við geirfuglinn verður auðvitað aldrei greidd með því að lífga hann við, hann er alltaf jafn uppstoppaður og hann var.

En mögulega getum við greitt skuld okkar við geirfuglinn með því að friða hvali.

Sjón


Tengdar fréttir

Hvalasöngur

Íris Ásmundardóttir dansari fjallar um hvalveiðar Íslendinga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×