Erlent

Róm­verjar fundu fyrir skjálftum og sex­tíu slösuðust þegar Kanye steig á svið

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það ætlaði allt um koll að keyra í Róm þegar Kanye birtist á sviði hringleikahússins.
Það ætlaði allt um koll að keyra í Róm þegar Kanye birtist á sviði hringleikahússins. Twitter

Sextíu manns slösuðust á tónleikum Travis Scott í Róm á mánudag. Allt lék á reiðiskjálfi þegar Kanye West steig óvænt á svið og töldu borgarbúar að jarðskjálfti hefði riðið yfir. Fornleifafræðingar kalla eftir því að tónleikahaldi verði hætt í hringleikahúsinu.

Enn einu sinni veldur tónleikahald bandaríska rapparans Travis Scott fjaðrafoki. Í þetta sinn vegna tónleika hans í fornrómverska hringleikahúsinu Circus Maximus í tilefni af útgáfu Útópíu, nýrrar plötu Scott.

Þar þurftu sextíu manns að leita sér læknisaðstoðar þegar ónefndur aðili spreyjaði piparúða yfir tónleikagesti. Þá slasaðist einnig fjórtán ára aðdáandi rapparans þegar hann reyndi að klífa veggi leikvangsins til að sjá tónleikana frítt.

Tæp tvö ár eru liðin síðan tíu manns létust á tónleikum Scott á tónlistarhátíðinni Astroworld í Texas í nóvember 2021.

Jarðskjálfti reyndist vera æsingur aðdáenda

Slökkviliðið í Róm greindi CNN frá því að nóttina sem tónleikarnir voru haldnir hefðu slökkviliðinu borist „mörg hundruð símtöl“ þar sem fólk tilkynnti um jarðskjálfta. Símhringingarnar bárust á sama tíma og rapparinn Kanye West steig á svið sem óvæntur gestur. 

„Það er engin Travis Scott án Kanye West. Það er engin Róm án Kanye West,“ sagði Travis Scott þegar herra West birtist á sviðinu og trylltust aðdáendur í kjölfarið.

West flutti lagið „Praise God“ af plötunni Donda og hið klassíska „Can't Tell Me Nothing“ frá árinu 2007. Þetta var í fyrsta sinn sem Kanye West kemur opinberlega fram á tónleikum síðan hann lét frá sér hatursfull ummæli um gyðinga í desember síðastliðnum.

Kalla eftir stöðvun tónleikahalds

Alfonsina Russo, forstjóri fornminjagarðs Kólosseums, hefur kallað eftir því að stóru tónleikahaldi verði hætt í Circus Maximus.

„Circus Maximus er minnisvarði, ekki leikvangur eða tónlistarhús,“ sagði Russo í viðtali við ítalska fjölmiðilinn AGI. 

„Þessir risatónleikar stefna honum í hættu og Palatine-hæð að auki. Rokktónleikar ættu að vera haldnir á leikvöngum til að ógna ekki öryggi almennings,“ sagði Russo.

Hringleikahúsið, sem er staðsett á botni Palatine-hæðar nálægt Kólosseum, hefur á undanförnum árum orðið að vinsælum tónleikastað. Í sumar hafa Imagine Dragons, Guns N' Roses og Bruce Springsteen spilað í hringleikahúsinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×