Lífið

Breaking Bad stjarna látin

Máni Snær Þorláksson skrifar
Mark Margolis er látinn, 83 ára að aldri.
Mark Margolis er látinn, 83 ára að aldri. Getty/Mike Pont

Bandaríski leikarinn Mark Margolis er látinn, 83 ára að aldri. Margolis er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Hector Salamanca í sjónvarpsþáttaröðunum Breaking Bad og Better Call Saul.

Margolis lést á Mount Sinai spítalanum í New York í Bandaríkjunum í gær eftir að hafa glímt við skammvinn veikindi. Morgan Margolis, sonur leikarans, staðfestir andlát föður síns. 

Sem fyrr segir lék Margolis í sjónvarpsþáttaröðunum vinsælu og kannast fólk eflaust helst við hann þaðan. Hann fór þó einnig með önnur hlutverk á ferlinum og lék til að mynda í kvikmyndunum Scarface, Black Swan og Ace Ventura: Pet Detective.

Margolis lætur eftir sig eiginkonu sína, Jacqueline, son sinn Morgan og tvö barnabörn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×