Sport

Útlitið ekki bjart hjá Breka en Bergrós sjöunda fyrir lokadaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bergrós Björnsdóttir og Breki Þórðarson keppa bæði í sínum síðustu greinum á heimsleikunum í dag. Hér eru þau með Eggerti Ólafssyni.
Bergrós Björnsdóttir og Breki Þórðarson keppa bæði í sínum síðustu greinum á heimsleikunum í dag. Hér eru þau með Eggerti Ólafssyni. Instagram/@bergrosbjornsdottir

Lokadagur Bergrósar Björnsdóttur og Breka Þórðarsonar á heimsleikum í CrossFit er í dag en þá lýkur keppni í aldursflokkum og flokkum fatlaðra á leikunum í Madison.

Bergrós keppir í flokki sextán og sautján ára stelpna en Breki keppir í flokki fatlaðra, svokölluðum Upper Extremity flokki.

Bergrós hristi af sér mikið áfall á fyrsta degi þegar hún fékk hitaslag og sýndi þá mikla keppnishörku með því að halda áfram og klára daginn.

Bergrós er í sjöunda sætinu eftir fyrstu tvo dagana. Hún var í sjöunda sæti eftir fyrsta daginn en kom sér hæst upp í fjórða sætið með góðri frammistöðu í fyrstu grein gærdagsins.

Bergrós náði ekki að fylgja því eftir og varð sjötta og sjöunda í hinum tveimur greinum dagsins.

Hún deilir nú sjöunda sætinu með hinni bandarísku Rylee Beebe en báðar eru þær með 300 stig. Það eru samt bara fjörutíu stig upp í þriðja sætið og þrjátíu stig upp í fjórða sætið.

Trista Smith og Lucy McGonigle eru jafnar á toppnum með 510 stig en þær hafa sýnt mikla yfirburði í keppninni. Það er aftur á móti mikil keppni um það hver kemst á verðlaunapallinn með þeim.

Breki Þórðarson hefur verið í vandræðum á þessum heimsleikum og annar dagurinn var mjög þungur hjá honum.

Hann náði bæði öðru og fjórða sæti í fyrstu þremur greinunum en endaði neðstur í öllum þremur greinum gærdagsins.

Breki er langneðstur og það verður mjög erfitt fyrir hann að hækka sig á lokadeginum enda hundrað stigum á eftir manninum fyrir ofan sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×